Skoðun

Hin heimtu­freka kennara­stétt

Áslaug Pálsdóttir Ragnheiðardóttir skrifar

Ýmsir aðilar sjá nú ofsjónum yfir frekjunni í kennarastéttinni. Að þær (við erum jú í miklu meiri hluta konur) skuli voga sér!

Sumir virðast alls ekki geta skilið um hvað þessi deila snýst. Umræðan á netinu ber vott um slíka vanþekkingu að maður verður alveg orðlaus. Af hverju orði drýpur fyrirlitningin og djúpstætt hatur fólks á kennarastéttinni. Það er jú þjóðaríþrótt Íslendinga að tala niður kennara og skólastarf og nú er veisla! 

En í tilraun til að setja þessa stöðu í samhengi sem fólk getur hugsanlega skilið skulum við taka dæmi sem er mörgum nærtækt. Fasteignakaup. 

Gefum okkur að ég (kennarastéttin) búi í 80 fm blokkaríbúð. Þetta er ágæt íbúð, hér er búið að dytta að ýmsu gegnum árin, skipta um parket, setja nýja eldhúsinnréttingu og mála herbergin. Mér hefur oftast liðið vel hérna, þó stundum hafi kyndingin bilað, eða komið upp leki. Mig langar samt alltaf til að kaupa mér einbýlishús.

Ég skoða fasteignaauglýsingar og finn hús sem mér líst vel á. Húsið er kannski heldur dýrara en ég hefði viljað en ég vil gjarnan eignast húsið svo ég felst á að greiða uppsett verð. Ég skrifa undir kaupsamning og greiði eiganda hússins (sveitarfélögunum) uppsett verð upp í topp. Við semjum um að ég fái húsið afhent 1. febrúar. 

En nú er janúarmánuður óðum að klárast og eigandinn sýnir ekkert fararsnið á sér. Hann er ekki einu sinni farinn að pakka! Ég er svolítið farin að ókyrrast svo ég banka upp á hjá honum og spyr, “stendur ekki örugglega til að fái húsið afhent 1. febrúar eins og um var samið?” Í stað þess að fullvissa mig um heiðarleika sinn og lofa að staðið verði við allt saman, bregst eigandinn hinn versti við. Hann sakar mig um frekju og óraunhæfar kröfur. Hver held ég eiginlega að ég sé? Er ég of góð til að búa í blokk? Hvað með alla hina sem búa líka í blokkum? Er mér alveg sama um þau? 

Það sér það hver heilvita maður að þessi viðbrögð eru óréttlát og algjörlega úr samhengi við “kröfurnar” . Kennarar eru ekki að ætlast til þess að nýr kjarasamningur gefi þeim tugi prósenta í launahækkun. Hér þarf fyrst að standa við gefin loforð, svo er hægt að fara að ræða um nýjan kjarasamning. Samkomulagið um jöfnun launa og lífeyrisréttinda milli markaða var undirritað árið 2016. Það er óumdeilt. Kennarastéttin greiddi sinn hlut, lífeyrisréttindin sín, á rúmu ári. Sveitarfélögin hafa hins vegar ekki staðið við neitt af sínum hluta samkomulagsins og tíminn er að renna út. 

Við viljum einfaldlega fá húsið okkar afhent á umsömdum tíma. Mér finnst það ekki ósanngjörn krafa. 

Höfundur er leikskólastjóri og tveggja barna móðir.




Skoðun

Sjá meira


×