Innlent

Lýsa yfir miklum von­brigðum með stöðu við­ræðna

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá baráttu- og samstöðufundi kennarasambands Íslands í nóvember.
Frá baráttu- og samstöðufundi kennarasambands Íslands í nóvember. Vísir/Anton

Samninganefndir allra aðildarfélaga Kennarasambands Íslands lýsa yfir miklum vonbrigðum með stöðu kjaraviðræðna við ríki og sveitarfélög. Í ályktun frá samninganefndanna segir að viðhorf launagreiðenda í viðræðunum birtist sem virðingarleysi í garð kennara.

Samninganefndirnar skora á nýkjörna ríkisstjórn að „standa við orð sín“ fyrir þingkosningarnar og binda enda á deilu KÍ við ríki og sveitarfélög.

Ályktun samninganefndanna var samþykkt á fundi nefndanna í dag en þar fór Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, yfir stöðuna í kjaradeilunni.

Í henni segir að skýrar vísbendingar liggi fyrir um kerfislægan og ómálefnalegan mun á launum sérfræðinga í fræðslustarfsemi á opinberum markaði og sérfræðinga á almennum markaði. Þá segir að í samkomulagi frá 2016 liggi fyrir loforð opinberra launagreiðenda um að jafna þennan mun á sex til tíu árum.

„Samninganefndir allra aðildarfélaga hafa lýst því yfir að í yfirstandandi kjaraviðræðum sé algert forgangsatriði að við þetta verði staðið. Þannig verði kjarasamningar allra félaga að innibera skuldbindingu launagreiðenda og áætlun um hvernig jöfnun launa skuli náð á næstu árum. Þessi krafa stendur enn óhögguð.“

Ályktunina í heild má lesa hér að neðan.

Fundur samninganefnda allra aðildarfélaga Kennarasambands Íslands, haldinn í Borgartúni 30 föstudaginn 24. janúar 2025, samþykkir eftirfarandi ályktun:

Samninganefndir allra aðildarfélaga KÍ lýsa miklum vonbrigðum með stöðu kjaraviðræðna við ríki og sveitarfélög. Skýrar vísbendingar liggja fyrir um kerfislægan og ómálefnalegan mun á launum sérfræðinga í fræðslustarfsemi á opinberum markaði og sérfræðinga á almennum markaði. Í samkomulagi frá 2016 liggja fyrir loforð opinberra launagreiðenda um að jafna þennan mun á 6 til 10 árum. Samninganefndir allra aðildarfélaga hafa lýst því yfir að í yfirstandandi kjaraviðræðum sé algert forgangsatriði að við þetta verði staðið. Þannig verði kjarasamningar allra félaga að innibera skuldbindingu launagreiðenda og áætlun um hvernig jöfnun launa skuli náð á næstu árum. Þessi krafa stendur enn óhögguð. ​

Viðhorf launagreiðenda í kjaraviðræðunum birtist ekki aðeins sem virðingarleysi við kennarastéttina í heild heldur einnig sem virðingarleysi við hlutverk kennarastéttarinnar sem er að tryggja börnum okkar bestu menntun sem völ er á. Börn eiga rétt á að njóta fagmennsku og stöðugleika á skólagöngu sinni. ​

Fyrir hönd þeirra tólf þúsund félagsmanna sem saman mynda Kennarasamband Íslands skora samninganefndirnar á nýkjörna ríkisstjórn að standa við orð sín í aðdraganda kosninga og leiða þessa deilu til farsælla lykta.​

Nú er tíminn til að fjárfesta í kennurum.


Tengdar fréttir

„Ég get horft í augun á ykkur“

Þriggja barna faðir segist vel geta horft í augun á kennurum barna sinna og sagst gera það sem hann telji réttast til að verja hagsmuni barna sinna. Formaður Félags leikskólakennara sagðist í gær efast um að foreldrar, sem hafa stefnt Kennarasambandi Íslands, gætu horft í augu kennara barna sinna.

Boða til alls­herjar­fundar samninganefnda Kennara­sam­bandsins

Samninganefndir allra aðildarfélaga Kennarasambands Íslands hafa verið boðaðar til stöðufundar í húskynnum Kennarasambandsins eftir hádegi. Algjör pattstaða er uppi í kjaraviðræðum kennara og sveitarfélaga. Formaður Kennarasambandsins vonar að skýrari mynd fáist af afstöðu félagsfólks að loknum fundi.

„Við erum algjörlega komin á endastöð“

Kjaraviðræður kennara við ríki og sveitarfélög eru komnar stál í stál og fátt virðist geta komið í veg fyrir að verkföll skelli á um mánaðamótin. Formaður samninganefndar sveitarfélaga segir viðræðurnar á endastöð og stranda á kröfum um miklar launahækkanir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×