Innlent

Kærði lög­regluna en málið ekki rann­sakað af öðrum en lög­reglunni

Árni Sæberg skrifar
Lögreglan í Vestmanneyjum mun að óbreyttu rannsaka eigin ætluð brot.
Lögreglan í Vestmanneyjum mun að óbreyttu rannsaka eigin ætluð brot. Vísir/Vilhelm

Karlmaður segir farir sínar ekki sléttar eftir samskipti við Héraðssaksóknara, sem hefur beint kæru mannsins á hendur Lögreglunni í Vestmannaeyjum til meðferðar hjá Lögreglunni í Vestmannaeyjum.

Maðurinn, sem er innflytjandi í atvinnurekstri, vill ekki láta nafns síns getið af ótta við að spilla máli sínu á hendur lögreglunni. Í samtali við Vísi segir hann að málið megi rekja til þess að góður vinur hans lést í Vestmannaeyjum árið 2023.

Lögregla hafi farið heim til mannsins, sem hafi verið kominn á virðulegan aldur, þegar ekki hafði heyrst frá honum um nokkurt skeið og komið að honum látnum. Lögreglan hafi fjarlægt líkið úr íbúð mannsins, sem hann hafði á leigu hjá Vestmannaeyjabæ.

Leigusalanum hleypt inn

Íbúðin hafi hins vegar ekki verið innsigluð heldur hafi lögreglan leyft leigusalanum, Vestmannaeyjabæ, að fara inn í íbúðina og ráðstafa henni að vild. Íbúðin hafi verið tæmd í snatri og þrifin hátt og lágt.

Inni í íbúðinni hafi eins og gengur verið mikið magn lausafjármuna, bæði í eigu húsráðanda og viðmældanda Vísis. Hann hafi fengið að geyma ýmsa muni tengda atvinnurekstri hans heima hjá vini sínum. Hann áætli að verðmæti munanna hlaupi á nokkrum milljónum króna. Munirnir séu nú hvergi finnanlegir.

Kærði lögregluna en kæran endar hjá lögreglunni

Maðurinn kærði lögregluna og Vestmannaeyjabæ bæði persónulega og fyrir hönd fyrirtækis síns vegna málsins. Kærunni beindi hann eðli málsins samkvæmt til Héraðssaksóknara, enda vildi hann síður að sá kærði rannsakaði eigið ætlað brot.

Það gerði maðurinn með vísan til ákvæðis lögreglulaga um að Héraðssaksóknari skuli rannsaka ætluð brot lögreglumanna.

Í erindi mannsins til Ríkissaksóknara, þar sem óskað er eftir því að því verði beint til Héraðssaksóknara að rannsaka málið, segir að í lok desember hafi Héraðssaksóknari tilkynnt manninum að kærunni yrði vísað til Lögreglunnar í Vestmannaeyjum til rannsóknar. Embætti Héraðssaksóknara rannsaki einkum efnahags- og skattalagabrot. Málið heyri því ekki undir embætti Héraðssaksóknara.

Ríkissaksóknari aðhefst ekki

Maðurinn segir að Ríkissaksóknari hafi brugðist við erindi hans í dag. Niðurstaðan væri sú að Ríkissaksóknari ætli ekki að beina því til Héraðssaksóknara að taka málið til rannsóknar.

Málið sé því í algjörri kyrrstöðu, enda hafi hann dregið kæruna til baka áður en hún barst Lögreglunni í Vestmannaeyjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×