Enski boltinn

Xabi vill sækja liðs­styrk til Pep

Smári Jökull Jónsson skrifar
Enski landsliðsmaðurinn Phil Foden fagnar hér ásamt James McAtee eftir mark þess síðarnefnda gegn Salford City í FA-bikarnum.
Enski landsliðsmaðurinn Phil Foden fagnar hér ásamt James McAtee eftir mark þess síðarnefnda gegn Salford City í FA-bikarnum. Vísir/Getty

Xabi Alonso og lærisveinar hans í Bayer Leverkusen sitja í 2. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu og eru sex stigum á eftir toppliði Bayern Munchen. Spánverjinn klóki vill styrkja liðið og hefur augastað á leikmanni Manchester City.

Bayer Leverkusen kom öllum á óvart á síðustu leiktíð og varð tvöfaldur meistari í Þýskalandi undir stjórn Xabo Alonso. Gengið hefur ekki verið alveg jafn gott á yfirstandandi leiktíð en liðið er þó í toppbaráttu og situr í 2. sæti þýsku deildarinnar og í seilingarfjarlægð frá toppliði Bayern Munchen.

Knattspyrnustjórinn Xabi Alonso var sagður á óskalista síns fyrrum félags Liverpool áður en Arne Slot var ráðinn og hann horfir nú til Englands í leit að liðsstyrk.

Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano segir að Alonso vilji fá James McAtee frá Manchester City yfir til Þýskalands en McAtee er fæddur árið 2002 og hefur fengið fá tækifæri hjá Pep Guardiola og liði City.

Romano segir að Leverkusen hafi lagt fram lánstilboð með möguleika á að kaupa McAtee þegar láninu lýkur en Guardiola er tregur til að sleppa Englendingnum unga og segir hann eiga framtíð fyrir sér hjá City.

McAtee hefur ekki byrjað einn einasta leik hjá City í deild eða Meistaradeild á tímabilinu en skoraði þrennu í bikarleik liðsins gegn Salford í byrjun mánaðarins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×