Enski boltinn

Viður­kenna mis­tök og Arsenal-maðurinn laus við bann

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Myles Lewis-Skelly gengur af velli eftir að hafa fengið rauða spjaldið í leik Wolves og Arsenal.
Myles Lewis-Skelly gengur af velli eftir að hafa fengið rauða spjaldið í leik Wolves og Arsenal. getty/Marc Atkins

Enska knattspyrnusambandið hefur dregið til baka þriggja leikja bannið sem til stóð að Myles Lewis-Skelly f engi eftir rauða spjaldið sem hann hlaut í leiknum gegn Wolves um helgina.

Arsenal áfrýjaði dómnum, sem flestum virtist strax ljóst að var hreinlega rangur, og nú hefur óháð nefnd komist að þeirri niðurstöðu að hann hefði ekki átt að fá rautt spjald.

Skömmu fyrir hálfleik rak Michael Oliver Lewis-Skelly út af fyrir að brjóta á Matt Doherty. Ákvörðunin var staðfest eftir skoðun á myndbandi.

Dómurinn þótti afar umdeildur og margir hafa gagnrýnt ákvörðun Olivers. Sumir hafa gengið lengra en aðrir og dómaranum hafa borist líflátshótanir. Þrátt fyrir það ætlar hann að dæma í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi.

Ef bann Lewis-Skelly hefði staðið þá hefði hann misst af næstu þremur leikjum Arsenal; gegn Manchester City og Leicester City í ensku úrvalsdeildinni og seinni leiknum gegn Newcastle United í undanúrslitum deildabikarsins.

Arsenal vann leikinn gegn Wolves, 0-1, með marki Riccardos Calafiori. Lewis-Skelly var ekki sá eini sem var rekinn af velli í leiknum því þegar tuttugu mínútur voru eftir fékk Joao Gomes, miðjumaður Úlfanna, rautt spjald. 

Arsenal er í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 47 stig, sex stigum á eftir toppliði Liverpool sem á leik til góða.

Arsenal mætir Girona á útivelli í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu annað kvöld. Skytturnar eru í 3. sæti Meistaradeildarinnar og svo gott sem öruggar með sæti í sextán liða úrslitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×