Skoðun

97 ár í sjálf­boða­liða­starfi

Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir skrifar

Í morgun héldu fimm sjálfboðaliðar Slysavarnafélagsins Landsbjargar til hafs á nýju öflugu og afar fullkomnu björgunarskipi, til aðstoðar tveimur skipverjum á fiskibát sem misst hafði stýri og rak hættulega nærri landi.

Áhöfn björgunarskipsins Bjargar var aðeins um 20 mínútur að sigla frá Rifi, vestur fyrir Snæfellsnes þar til komið var að bátnum.

Allt fór vel og sjálfboðaliðar félagsins komu með bátinn til hafnar á Rifi rétt upp úr klukkan 8.

Björg er fjórða skipið sem félagið endurnýjar af þrettán skipum í afar metnaðarfullu verkefni, með öryggi sjófarenda í huga.

Það er kannski til marks um hve mikil breyting hefur orðið í öryggismálum sjómanna og í raun landsmanna allra, að í morgun varð mannbjörg.

Mannbjörg á 97 ára afmæli Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

Það má ekki gleymast að fyrir stofnun félagsins, þann 29. Janúar árið 1928, var það hinn harði fórnarkostnaður þess að sækja verðmæti hafsins að fjöldi sjómanna átti ekki afturkvæmt á hverju ári.

Á áratugnum 1921 til 1930 drukkna 685 sjómenn við Íslandsstrendur, nærri 70 manns ár hvert. Í 25 ára afmælisriti félagsins kallar höfundur, Gils Guðmundsson, þetta skattinn mikla og það er það svo sannarlega. Hinn endanlegi skattur.

Á þeim 97 árum sem Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur starfað, fyrst sem Slysavarnafélag Íslands og síðar með sameiningu við Landsbjörg, landsamband björgunarsveita, í Slysavarnafélagið Landsbjörg, hefur orðið bylting í öryggismálum sjómanna.

Árlega fara mörg hundruð sjómenn í gegnum öryggisnámskeið félagsins og björgunarsveitir þess sinna oft á tíðum vel á annað þúsund útkalla ár hvert.

Þúsundir sjálfboðaliða vinna öll saman undir hatti félagsins að því að vinna ötullega að slysavörnum og vera til taks þegar á þarf að halda, sem vissulega er oftar en góðu hófi gegnir stundum, í óblíðri náttúru okkar lands. Á þessum árum hafa tugþúsundir sjálfboðaliða haldið merkjum félagsins á lofti, með það eitt að leiðarljósi að koma til aðstoðar þegar á þarf að halda og við sjáum í unglingastarfi félagsins næstu kynslóðir brenna fyrir að taka við keflinu og bera það áfram inn í framtíðina.

Til hamingju með daginn!

Höfundur er formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar




Skoðun

Sjá meira


×