Innlent

Vegum um Hellis­heiði og Þrengsli lokað

Atli Ísleifsson skrifar
Hellisheiði hefur verið á óvissustigi í dag.
Hellisheiði hefur verið á óvissustigi í dag. Vísir/Vilhelm

Búið er að loka vegunum um Hellisheiði og Þrengsli vegna ófærðar. 

Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar. Vegirnir hafa verið á óvissustigi í dag. 

Hálka, snjóþekja eða hálkublettir og skafrenningur er á flest öllum leiðum á suðvesturhorni landsins. Hálka og óveður er á Kjalarnesi og undir Hafnarfalli. Ófært er á Krýsuvíkurvegi og á Festarfjalli.

Einnig er búið að loka veginum um Mosfellsheiði.

Flughálka er á Vesturlandsvegi á milli Grafarholts og Mosfellsbæjar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×