Orri Steinn nýtti tækifærið Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 30. janúar 2025 19:31 Orri Steinn nýtti höfuðið vel í kvöld. Ion Alcoba Beitia/Getty Images Orri Steinn Óskarsson fékk tækifæri í byrjunarliði Real Sociedad í kvöld þegar liðið tók á móti PAOK í Evrópudeild karla í knattspyrnu. Hann gat vart nýtt tækifærið betur og skoraði bæði mörk Sociedad í 2-0 sigri. Það mátti búast við jöfnum leik þar sem liðin voru jöfn að stigum í 17. og 18. sæti deildarinnar. Orri Steinn hafði ekki fengið marga sénsa undanfarið en var í byrjunarliðinu í kvöld. Hann þakkaði traustið á hinni margrómuðu markamínútu. Það voru komnar 43 mínútur á klukkuna þegar Sheraldo Becker átti góða fyrirgjöf sem Orri Steinn stangaði í netið af stuttu færi. Orri Steinn átti svo sinn þátt í því að leikmaður PAOK skoraði sjálfsmark áður en fyrri hálfleik var lokið en það mark dæmt af vegna rangstöðu í aðdragandanum. Staðan var 1-0 í hálfleik en íslenski landsliðsframherjinn tvöfaldaði forystuna eftir aðeins þriggja mínútna leik í síðari hálfleik. Aftur skoraði hann með skalla úr teignum, nú eftir fyrirgjöf Aritz Elustondo. Orri Steinn var tekinn af velli þegar rúmur stundarfjórðungur var til leiks. Það kom ekki að sök og Sociedad vann 2-0 sigur sem tryggði liðinu sæti í umspili um sæti í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar. Dregið verður í umspilið á morgun og verður drátturinn sýndur beint á Stöð 2 Sport 2. Evrópudeild UEFA Fótbolti
Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 87-108 | Stjarnan átti í litlum vandræðum með Grindavík Körfubolti
Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 87-108 | Stjarnan átti í litlum vandræðum með Grindavík Körfubolti