Íslenski boltinn

KR vann fer­tugasta Reykja­víkur­meistara­titilinn annað árið í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Titlarnir eru byrjaðir að streyma inn i Frostaskjólið á ný eftir að Óskar Hrafn Þorvaldsson tók við liðinu.
Titlarnir eru byrjaðir að streyma inn i Frostaskjólið á ný eftir að Óskar Hrafn Þorvaldsson tók við liðinu. Vísir/Hulda Margrét

Óskar Hrafn Þorvaldsson er búinn að skila fyrsta titlinum í hús sem þjálfari KR. KR varð Reykjavíkurmeistari eftir 3-0 sigur á Valsmönnum í úrslitaleiknum í gær.

Það má segja að þetta sé annað árið í röð sem KR vinnur fertugasta Reykjavíkurmeistaratitilinn.

KR vann nefnilega Víkinga í vítakeppni í úrslitaleiknum í fyrra en missti síðan titilinn þegar upp komst að þeir höfðu notað ólöglegan leikmann í leiknum.

KR var því búið að vinna 39 Reykjavíkurmeistaratitla fyrir leikinn í gærkvöldi en lönduðu eins og áður sagði þeim fertugasta.

KR er fyrsta félagið til að vinna fjörutíu Reykjavíkurmeistaratitla í karlaflokki. Þeir hafa nú unnið tólf fleiri en Fram (28) og sextán fleiri en Valur (24).

Þetta var fyrsti Reykjavíkurmeistaratitill KR í fimm ár en sá sjötti á öldinni. KR vann 34 Reykjavíkurmeistaratitla fram að hundrað ára afmæli félagsins.

  • Reykjavikurmeistaratitlar KR eftir árum
  • Titlar frá 1915-1949: 13
  • Titlar frá 1950-1969: 10
  • Titlar frá 1970-1989: 4
  • Titlar frá 1990-1999: 7
  • Titlar frá 2000-2009: 2
  • Titlar frá 2010-2019: 2
  • Titlar frá 2020-2025: 2



Fleiri fréttir

Sjá meira


×