Pavel og Helgi Már Magnússon ætla að gasa í beinni útsendingu á Stöð 2 BD 1 rásinni klukkan 19:10 í kvöld þar sem þeir fylgjast með leik Álftaness og Hauka. Frítt er á völlinn fyrir þá sem hafa áhuga á að mæta.
Upphitun þeirra má sjá hér að neðan.
Haukar sitja á botni deildarinnar sex stigum frá öruggu sæti en það er Álftaness sem þar situr. Álftanes hefur styrkt sig mikið að undanförnu á meðan að Haukar hafa verið að bæta leik sinn svo um munar.
„Miðað við hvernig þeir eru búnir að spila í síðustu leikjum býst maður við því að þeir komi bandbrjálaðir út í þennan leik,“ segir Helgi Már um Haukana. „Stilla þessu upp sem einhvers konar úrslitaleik. Þeirra síðasta atlaga á að halda sér í deildinni.“
Og Helga langar að verðlauna Haukana.
„Það eru svo mörg lið í þessari stöðu sem eru leiðinleg, búin, flöt og búin að gefast upp. Senda leikmenn heim og svo framvegis á meðan að Haukarnir djöflast og láta öll lið hafa fyrir þessu.“