Þetta kemur fram í viðtali við fyrirsætuna í breska götublaðinu The Sun. Söngvarinn lést þann 16. október síðastliðinn eftir að hafa fallið af hótelsvölum af þriðju hæð. Payne var í fríi í Buenos Aires í Argentínu. Fimm hafa verið ákærðir fyrir manndráp vegna andláts hans en samkvæmt rannsóknum lögreglu var söngvarinn undir áhrifum áfengis, kókaíns og þunglyndislyfja þegar hann lést.
Hafði skyldum að gegna
Cassidy segist hugsa um Payne á hverjum einasta degi. Hún segir söngvarann hafa verið í góðu standi þegar hún yfirgaf Argentínu tveimur dögum áður en hann lést. „Við vorum á svo góðum stað, við vorum svo ástfangin, hann var svo hamingjusamur og jákvæður. Og ég bara trúi því ekki að þetta hafi endað svona.“
Hún segir að hún hafi þurft að yfirgefa Argentínu til þess að huga að hundinum þeirra, Nölu. Hefði hún vitað sem var hefði hún aldrei yfirgefið Argentínu. „Ég hafði mína ábyrgð, við höfðum okkar ábyrgð sem við urðum að sinna. Við áttum hund og augljóslega bjóst ég aldrei, aldrei við því að eitthvað þessu líkt gæti gerst.“
Cassidy segir þau bæði ávallt hafa verið sjálfstæð. Þetta hafi ekki verið fyrsta skiptið sem hún hafi ferðast ein. Hún segir Payne hafa verið besta mann sem hún hafi nokkurn tímann hitt. Hún hafi verið skotin í honum frá tíu ára aldri. Hún segist vera fegin því að hafa heyrt af andláti kærasta síns frá sameiginlegum vini sem hafi hringt í hana, en ekki af samfélagsmiðlum.
„Ég trúði þessu ekki fyrst. Ég hélt þetta væri bara orðrómur. Eða að einhver hefði skáldað þetta til þess að fá áhorf og klikk,“ segir Cassidy. Hún segir að sín síðustu skilaboð til Payne hafi verið um Hrekkjavökuskreytingar á heimili þeirra.
Eftir að hún heyrði að hann væri látinn segist Cassidy hafa síendurtekið hringt í sinn mann í geðshræringu. Það hafi verið einskonar varnarviðbrögð en hún segir að fyrstu andartökin eftir að hann var látinn séu enn í móðu. Hún muni lítið sem ekkert eftir fyrstu dögunum.