Innlent

Segir manns­lífum stofnað í hættu með lokun flug­brautar

Kristján Már Unnarsson skrifar
Tómas Dagur Helgason, flugrekstrarstjóri Norlandair. Fyrir aftan má sjá trjágróðurinn í Öskjuhlíð og flugbrautina sem verður lokað frá og með laugardegi.
Tómas Dagur Helgason, flugrekstrarstjóri Norlandair. Fyrir aftan má sjá trjágróðurinn í Öskjuhlíð og flugbrautina sem verður lokað frá og með laugardegi. Stefán Ingvarsson

Flugrekstrarstjóri Norlandair, sem annast sjúkraflug innanlands, segir mannslífum stofnað í hættu með lokun annarrar flugbrautar Reykjavíkurflugvallar. Hann segir að þetta megi ekki gerast og biðlar til ráðamanna ríkis og borgar að leysa málið strax.

„Þetta mun rýra rekstraröryggi flugvallarins um 25 prósent þar sem Isavia hefur gefið út tölur um að braut 13/31 er í notkun 25 prósent af tímanum,“ segir Tómas Dagur Helgason, flugrekstrarstjóri Norlandair á Akureyri, í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Austur/vestur-braut flugvallarins verður lokað frá og með laugardegi, samkvæmt tilskipun sem Samgöngustofa sendi Isavia í gærkvöldi. Ástæðan er sú að Reykjavíkurborg hefur ekki uppfyllt kröfur um að trjágróður í Öskjuhlíð, sem vaxið hefur upp í hindranafleti, skuli felldur.

Frá Akureyrarflugvelli. Sjúkraflug gegnir lykilhlutverki í að koma slösuðu fólki og sjúklingum af landsbyggðinni með sem skjótustum hætti á sjúkrahús í Reykjavík.Vísir

„Ég bara biðla til allra þeirra sem stýra þessu, það er borgarstjórnar, innviðaráðherra, Samgöngustofu, Isavia, að setjast niður og leysa þetta mál. Þetta má bara ekki gerast.

Það er verið að setja… - það er verið að raska heilbrigðiskerfinu verulega í landinu og stofna lífi landsmanna í hættu.

Við erum ítrekað búnir að lenda í því að við erum að koma inn til Reykjavíkur með fólk í alvarlegu ástandi, fólk í hjartastoppi, inn í aðflugi inn á braut í Reykjavík.

Ekki setja okkur í þessa stöðu. Leysið þetta. Fellið þessi tré sem þarf að fella og það strax,“ segir flugrekstrarstjóri Norlandair, í viðtali sem heyra má hér:


Tengdar fréttir

Isavia fær tvo daga til að loka flugbrautinni

Samgöngustofa fyrirskipaði Isavia í gærkvöldi að loka austur-vestur flugbraut Reykjavíkurflugvallar, braut 31/13, frá miðnætti 8. febrúar, það er á laugardag. Ástæðan er trjágróður í Öskjuhlíð sem skerðir öryggi flugfarþega.

Á hreinu að ekki verður grafið undan Reykjavíkurflugvelli

Isavia bíður með að færa flugvallargirðingu í Skerjafirði þar til nýr samgönguráðherra hefur tekið afstöðu til þess hvort svæðið umdeilda verði afhent Reykjavíkurborg til nýrra húsbygginga. Ráðherrann segir alveg á hreinu að ekkert verði gert sem grafi undan tilvist Reykjavíkurflugvallar.

„Þau eru bara fyrir“

Samgöngustofa tilkynnti ISAVIA fyrr í mánuðinum að loka þyrfti annarri tveggja flugbrauta Reykjavíkurflugvallar vegna trégróðurs. ISAVIA kemur til með að loka brautinni í næstu viku en er nú þegar bannað að nota hana þegar myrkrar.

Heitar umræður um lokun flugbrautar

Heitar umræður mynduðust á fundi borgarstjórnar í dag um Reykjavíkurflugvöll en annarri flugbrauta vallarins verður lokað í næstu viku. Borgarfulltrúi segist ósáttur með seinagang meirihluta borgarstjórnar í málum varðandi flugvöllinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×