Fótbolti

Fyrsta snerting Neymars var á mjög við­kvæman stað

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Neymar liggur sárþjáður í jörðinni í fyrsta leik sínum með Santos.
Neymar liggur sárþjáður í jörðinni í fyrsta leik sínum með Santos. Getty/Alexandre Schneider

Neymar lék sinn fyrsta leik með brasilíska félaginu Santos í gær en hann snéri á dögunum aftur til uppeldisfélagsins.

Neymar kom inn á sem varamaður í hálfleik í 1-1 jafntefli Santos á móti Botafogo. Santos var yfir í leiknum þegar Neymar mætti á svæðið en fékk á sig jöfnunarmark í seinni hálfleiknum.

„Ég elska Santos og finn engin orð til að lýsa því hvernig mér leið þegar ég steig inn á völlinn,“ sagði Neymar eftir leikinn en þetta var fyrsti leikur hans i Santos búningnum í tólf ár. Tilfinningar flæddu út um allan völl og alla stúku þegar blóðheitir Brassar sá hetjuna sína spila aftur fyrir Santos.

Neymar hefur átt mjög erfið ár síðan að hann samdi við Al-Hilal í Sádi-Arabíu. Hann fékk þar risasamning en sleit krossband eftir aðeins nokkra leiki. Hann meiddist síðan aftur þegar hann sneri til baka og endanum sömdu hann og félagið um starfslok sex mánuðum áður en samningurinn átti að renna út.

Neymar var valinn maður leiksins í fyrsta leiknum með Santos og eftir leikinn vildu bæði samherjar og mótherjar fá mynd af sér með honum.

Hann er samt ekki kominn í sitt besta líkamlega form.

„Ég þarf að fá mínútur og er ekki hundrað prósent. Ég bjóst ekki við því að hlaupa svona mikið og vera svona mikið með boltann í kvöld. Ég held að ég verð orðinn miklu betri eftir fjóra eða fimm leiki,“ sagði Neymar sem hélt upp á 33 ára afmælið sitt á miðvikudagskvöldið.

Það vakti þó athygli að fyrsta snerting hans við boltann var á mjög viðkvæman stað eins og sjá má hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×