Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknarflokks og borgarstjóri sleit meirahlutasamstarfi á föstudag og gekk til viðræðna við Sjálfstæðisflokk, Viðreisn og Flokk fólksins. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins tilkynnti svo um kvöldmatarleyti í gær að flokkurinn myndi ekki ganga til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn í borginni. Staðan er í kjölfarið óljós.
Fréttastofa reyndi ítrekað í gær að ná tali af Hildi og Einari en án árangurs. Hildur birti svo færslu í dag en Einar fór yfir stöðuna í Sprengisandi.
Sjá einnig: Flokkur fólksins myndar ekki meirihluta með Sjálfstæðisflokki
„Fimmtán mánuðir eru eftir af kjörtímabilinu og því skammur tími til stefnu. Æskilegast væri að mynda meirihluta sem næði árangri og samstöðu um löngu tímabæra tiltekt í fjármálum borgarinnar, stórsókn í húsnæðisuppbyggingu og átak í leikskóla- og daggæslumálum. Þá mega skipulagskreddur ekki koma í veg fyrir skynsamlega nálgun í málefnum Reykjavíkurflugvallar,“ segir Hildur í færslu á Facebook-síðu sinni í dag.
Hún segir borgarfulltrúa skulda borgarbúum borg sem virkar. Sem er
„…einfaldari hversdag fyrir fjölskyldur, greiðari samgöngur fyrir fólk og fyrirtæki og kerfi sem hefur að markmiði að leggja fólki lið, en ekki leggja stein í götu þess. Auðvitað væri einfaldasta leiðin til að ná árangri með þessi mál að mynda meirihluta þeirra fjögurra flokka sem funduðu um helgina. Þar er augljós málefnalegur samhljómur og erfitt að sjá hvernig sambærilegum árangri yrði náð í öðru mynstri,“ segir Hildur.
Dyr Sjálfstæðismanna enn opnar
Hún segir ákall eftir bráðaaðgerðum í borginni og við slíkar aðstæður þurfi stjórnmálaflokkar að finna til ábyrgðar.
„Hvergi hefur borið skugga á samstarf sjálfstæðismanna og Flokks fólksins í borgarstjórn, og kom útspil þeirra því nokkuð á óvart. Dyr okkar sjálfstæðismanna standa enn opnar en eðli máls samkvæmt þarf nú að skoða fleiri möguleika. Það eru mörg mynstur sem koma til greina og það væri óábyrgt af stærsta flokknum í borginni að útiloka nokkuð við þessar aðstæður – því stjórnlaust skip steytir að endingu á skeri,“ segir hún að lokum.