Enski boltinn

Scholes óttast það að Man. United verði fallbaráttu á næsta ári

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Paul Scholes er ekki ánægður með leikmenn eins og Rasmus Hojlund. Hann vill að félagið kaupi tvo nýja framherja.
Paul Scholes er ekki ánægður með leikmenn eins og Rasmus Hojlund. Hann vill að félagið kaupi tvo nýja framherja. Getty/Manchester United/Richard Sellers

Manchester United goðsögnin Paul Scholes hefur miklar áhyggjur af næsta keppnistímabili hjá liði sinu. Hann segir mikið verk sé fyrir höndum til að móta nýtt lið.

Scholes er einn af goðsögnum United sem unnu hvern titilinn á fætur öðrum undir stjórn Sir Alex Ferguson. Þá var liðið besta liðið í Englandi en síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar.

Langt í land

United hefur reyndar unnið tvo af síðustu fjórum deildarleikjum sínum og komst áfram í ensku bikarkeppninni um síðustu helgi. Fram að því var United liðið bara á leiðinni niður í fallbaráttu en það er langur vegur eftir enn að mati Scholes.

Þetta gæti orðið versta tímabil Manchester United í sögu ensku úrvalsdeildarinnar og þrátt fyrir mjög slakt gengi þá hafði félagið bara efni á því að kaupa einn leikmann í janúarglugganum, Danann Patrick Dorgu, auk þess að semja við unglingaliðsmanninn Ayden Heaven.

Enginn kjarni í liðinu

„Það eru nokkur atriði sem valda mér áhyggjum. Ruben Amorim þarf að laga margt, við vitum það öll, en ekki síst á leikmannamarkaðnum. Vandamálið er að ég sé ekki neinn kjarna í leikmannahópnum,“ sagði Paul Scholes í hlaðvarpsþættinum The Overlap Fan Debate.

„Þegar þú horfir á hin liðið þá sérðu strax hryggjarstykkið hjá þeim. Liverpool er með frábæran markvörð, frábæran miðvörð, framherja, miðjumenn og allt sem til þarf. Ég tel að United sé ekki neinn alvöru leikmann í þeim stöðum,“ sagði Scholes.

„Liðið þarf að fá nýjan markvörð, líklega tvo nýja miðverði, tvo afturliggjandi miðjumenn og tvo framherja,“ sagði Scholes.

Hljómar kannski fáránlega

„Allt í góðu. Ég sætti mig við einn miðjumann og einn framherja en það þarf að gera þetta vel, finna hæfileikaríka menn og búa til burðarása í liðinu. Þegar þú ert kominn með þennan kjarna þá er auðveldara að bæta við hann,“ sagði Scholes.

„Þetta hryggjarstykki, þessi kjarni er svo mikilvægur. Þeir þurfa að passa upp á það að búa hann til í sumar. Þetta hljómar kannski fáránlega en miðað við form liðsins síðan þessi þjálfari tók við þá gætu þeir verið að fara í fallbaráttu. Ég óttast það því þetta hefur verið það slæmt,“ sagði Scholes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×