Súkkulaðiæði hefur tekið yfir þjóðina undanfarnar vikur. Svokallað Dúbaí-súkkulaði selst upp í verslunum út um allt land og bíður fólk í ofvæni eftir næstu sendingum.

Súkkulaðið sjálft er eins og nafnið gefur til kynna frá Dúbaí. Þetta er venjulegt súkkulaðistykki, fyllt með pistasíukremi og knafeh, sem er sígildur arabískur eftirréttur sem á uppruna sinn að rekja til Palestínu. Stykkið fór fyrst í verslanir erlendis árið 2021 og árið 2024 sló það í gegn á samfélagsmiðlum.
Bónus hóf sölu á súkkulaðinu í janúar og voru landsmenn ekki lengi að gúffa í sig allri sendingunni. Þriðja sendingin kom í dag og á fjórum klukkutímum voru öll þrjú þúsund stykkin seld.
„Þetta er búið að vera algjörlega klikkað. Og bara ótrúlega skemmtilegt að það sé svona fáránlega vel tekið í þetta,“ segir Björgvin Víkingsson, framkvæmdastjóri Bónuss.
Súkkulaðið fór líka í sölu í Hagkaup og flytur Söstrene grene einnig inn aðra tegund. Það er einnig uppselt þar. Svipuð æði hafa áður heltekið landann, til að mynda gúrkusalatið í fyrra og Prime-drykkirnir 2022.

„Þetta er sérstaklega mikið æði. Við tókum alveg eftir gúrkusalatinu og þurftum að taka inn erlenda gúrku til að tækla það. En ég ætla að segja að eitthvað sem selst upp á fjórum tímum, það er alveg einsdæmi hjá okkur,“ segir Björgvin.
En er eitthvað varið í þetta súkkulaði? Er fólk að missa sig vegna samfélagsmiðlaæðis eða er þetta gott? Fréttamaður prófaði að smakka, og sjón er sögu ríkari. Sjá nánar í klippunni hér fyrir neðan.