Innlent

Jafn­ræðis­reglan sé marg­brotin í frum­varpi mennta­mála­ráð­herra

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Bjarki Sigurðsson skrifa
Jón Pétur Zimsen er þingmaður Sjálfstæðisflokkinn og fyrrum skólastjóri.
Jón Pétur Zimsen er þingmaður Sjálfstæðisflokkinn og fyrrum skólastjóri. Vísir/Vilhelm

Mennta- og barnamálaráðherra vill innleiða nýtt fyrirkomulag samræmds námsmats í grunnskólum. Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa mótmælt frumvarpinu og segja það ekki raunverulega samræmt námsmat.

„Það sem manni finnst vera sérstakt er að við erum þarna með eitthvað sem á að heita samræmt mat en við höfum glugga til að taka það upp í tuttugu til þrjátíu daga, og mér finnst samræmingin í því ekki nægilega mikil,“ segir Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Hann bendi á að ef að einn skóli framkvæmi matið í byrjun mánaðar og annar einhverjum dögum seinna gætu spurningar farið á milli skóla. Það fást því ekki áreiðanlegar niðurstöður þegar skólar séu bornir saman út frá matinnu.

„Það sé í rauninni engin samræming á prófunum nema prófið sé tekið á sama tíma. Við erum að gagnrýna það að þessu samræma mati hafi verið klínt í það sem þau eru að tala um núna, þennan samræmda matsferil,“ segir Jón Pétur.

Hann vill að samræmt mat yrði endurtekið í lok grunnskólagöngu barna.

„Til dæmis þessi börn sem koma úr erfiðari bakgrunni en standa sig vel í skóla geta látið meta sig til jafns við aðra og fengið þarna tækifæri til að sýna hvað í þeim býr og komist síðan mögulega inn í framhaldsskóla. Eins og staðan er núna er engin samræming í einkunnum nemenda þegar þau útskrifast úr grunnskóla. Jafnræðisreglan er margbrotin þar. 

Að sögn Jóns Péturs sé ekki tekið á þessu í frumvarpi Ásthildar Lóu Þórsdóttur, barna- og menntamálaráðherra, sem sé nú til umræðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×