Það ráku margir upp stór augu rétt eftir hádegi í gær þegar þeir sáu stóra rútu fasta á grasfletinum milli Höfða og Arion banka í Borgartúni. Óreyndur bílstjóri reyndi að snúa henni við á fletinum í stað þess að bakka út bílastæðið. Jarðvegurinn var mjúkur og rútan festist.
Um borð var hópur ferðamanna frá Sjanghaí í Kína. Þau höfðu verið að skoða Höfða og bílstjórinn ekki treyst sér til að bakka út af planinu. Ferðamennirnir kipptu sér lítið upp við atvikið og biðu þess að úr málinu leystist. Á endanum var önnur rúta kölluð til til að taka við þessum hópi ferðamanna.
Við tók aðgerð þar sem kranabíll dró rútuna af flötinni og aftur á bílastæðið. Hægt er að sjá frá aðgerðunum í klippunni hér fyrir neðan. Rútan skildi eftir sig stórt sár.
Bjarki Þór Logason, verkefnastjóri öryggismála hjá Reykjavíkurborg, segir tjónið vegna rútunnar vera mikið.
„Þetta er algengt að þeir reyni að koma hérna og snúa við. Við höfum alveg orðið vitni að því. Það hefur bara gengið betur en þetta. Nú sér maður bara að það er vor í lofti,“ segir Bjarki.

Ásmundur Einarsson, framkvæmdastjóri rútufyrirtækisins, harmar atvikið og segir fyrirtækið greiða allt tjón.
„Horfum hér á aðstæður sem Reykjavíkur býður upp á við fjölsóttan ferðamannastað. Hér er bara þröngt. Ungur ökumaður sem keyrir út á grasið, greinilega festir bílinn og panikkar. Það er eina skýringin sem ég hef,“ segir Ásmundur.

Rútubílstjórinn reynslulitli mun líklega seint gleyma deginum því í hádeginu í gær ók hann rútunni inn á bannsvæði í miðborginni og ók þar niður steyptan staur.