Fótbolti

Özil búinn að finna sér nýjan starfs­vett­vang

Smári Jökull Jónsson skrifar
Özil og Erdogan sjást hér saman á leik Hollands og Tyrklands í 8-liða úrslitum Evrópumótsins í Þýskalandi í sumar.
Özil og Erdogan sjást hér saman á leik Hollands og Tyrklands í 8-liða úrslitum Evrópumótsins í Þýskalandi í sumar. Vísir/Getty

Fyrrum knattspyrnumaðurinn Mesut Özil er búinn að finna sér nýjan starfsvettvang. Hann ætlar að hella sér út í pólitíkina og er kominn í innsta hring flokks Erdogan Tyrklandsforseta.

Mesut Özil lagði knattspyrnuskóna á hilluna í mars árið 2023 eftir að hafa glímt við þrálát meiðsli. Hann lék á sínum ferli meðal annars bæði með Real Madrid og Arsenal auk þess að leika 92 landsleiki fyrir Þýskaland en hann varð heimsmeistari með þýska liðinu árið 2014.

Það hefur ekki verið neitt leyndarmál að Özil er mikill stuðningsmaður hins umdeilda Tyrklandsforseta Erdogan. Forsetinn var svaramaður Özil þegar hinn síðarnefndi gifti sig árið 2019 og nú ætlar Özil að feta í fótspor félaga síns og hella sér út í stjórnmálin.

Özil er nefnilega einn af þrjátíu og níu nýjum meðlimum í framkvæmdastjórn innan AK-stjórnmálaflokksins en landsþing flokksins fór fram um helgina þar sem Erdogan var endurkjörinn sem leiðtogi.

Tugir þúsunda sóttu landsfundinn en Erdogan var endurkjörinn sem formaður í áttunda sinn.

Vinátta Özil og Erdogan hefur oft verið gagnrýnd og mynd sem birtist af þeim tveimur og Ilkay Gundogan, leikmanni Manchester City, árið 2019 olli fjaðrafoki í Þýskalandi. Bæði Özil og Gundogan eru með þýskt ríkisfang en eiga ættir að rekja til Tyrklands.

Özil var á ferli sínum oft táknmynd innflytjenda í Þýskalandi, stimpill sem hann var ekki alltaf sáttur við.

„Ég er þýskur þegar við vinnum, innflytjandi þegar við töpum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×