Fótbolti

Liðsfélagi Alberts laus af spítala

Valur Páll Eiríksson skrifar
Kean var fluttur með sjúkrabíl af vellinum í Verona í gær.
Kean var fluttur með sjúkrabíl af vellinum í Verona í gær. Image Photo Agency/Getty Images

Ítalski framherjinn Moise Kean var í morgun útskrifaður af spítala eftir óhugnanlegt atvik í leik Fiorentina og Hellas Verona í ítölsku úrvalsdeildinni í gær.

Kean fékk hné pólska varnarmannsins Pawel Dawidowicz í höfuðið snemma í síðari hálfleik. Hann lét það ekki hafa áhrif á sig og hélt áfram leik. Sex mínútum eftir höggið hrundi hann hins vegar til jarðar og hafði margur miklar áhyggjur af framherjanum.

Hann var sendur beint með sjúkrabíl á næsta spítala í Verona en eftir urmul prófana hefur hann verið útskrifaður og virðist sem höfuðmeiðslin séu ekki eins alvarleg og óttast var.

Fiorentina tapaði leiknum 1-0 en Albert Guðmundsson, samherji Kean, var ekki með vegna meiðsla.

Um er að ræða annan leikmann Fiorentina sem missir meðvitund og er fluttur á sjúkrahús á leiktíðinni. Miðjumaðurinn Edoardo Bove sem fékk hjartaáfall í leik við Inter 1. desember síðastliðinn. Bove vonast til að spila knattspyrnu á ný en mun ekki gera það á Ítalíu eftir ígræðslu bjargráðs.

Ekki er heimilt að spila með bjargráð í ítalska fótboltanum en slíkt er leyfilegt í öðrum deildum.

Fiorentina er eftir tap gærdagsins með 42 stig í sjötta sæti deildarinnar, fimm stigum frá Lazio sem er þar fyrir ofan. Ekki er ljóst hversu langa hvíld Kean þarf vegna höfuðmeiðslanna en hann er markahæsti leikmaður liðsins með 15 mörk í ítölsku A-deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×