„Konan mín rekur augun í þetta á Facebook og þá tók ég eftir því að h´ var horfið úr bakgarðinum. Ég mundi nefnilega ekki hvort það stóð læst fyrir aftan hús eða væri inni í geymslu. Þannig þess saga er greinilega meiri en ég hafði áttað mig á,“ segir Ólafur Ögmundarsson eigandi hjólsins léttur í bragði í samtali við Vísi.
Vísir greindi frá því á mánudag að Héðinn Þorkelsson kafari hefði komið Bjartmari Leóssyni hjólahvíslara með meiru til aðstoðar. Bjartmar er löngu landskunnur fyrir að leita uppi týnd hjól og honum hafði borist ábending um hjól í Reykjavíkurhöfn, á um tveggja metra dýpi. Hann auglýsti eftir aðstoð, gerði sér von um sjósundskappa en alvöru kafari í Héðni fékkst í verkið.
Eina hjól sinnar tegundar á Íslandi
Bjartmar greindi svo frá því á Facebook í dag að eigandi hjólsins væri kominn í leitirnar. Það er Ólafur Ögmundarson íbúi í Litla-Skerjafirði.
„Eftir að konan spyr mig kíki ég út um útidyrnar og þar er ekkert hjól. Ég þekkti það strax, enda er þetta fjarska fallegt hjól og ég held alveg örugglega að þetta sé eina hjól sinnar tegundar hér á landi,“ útskýrir Ólafur. Hjólið var keypt í Danmörku fyrir tíu árum síðan og er af amerískri gerð úr smiðju Giant. En veit Ólafur hvenær hjólið gæti hafa horfið?
„Örugglega á allra síðustu dögum. Ég veit að það var á bakvið hús þegar ég var úti í garði að grilla á afmælisdaginn minn 15. febrúar. Það var gott veður þann dag,“ segir Ólafur sem lætur það vera að hann sé mikill hjólreiðagarpur, þó hann eigi annað nýrra hjól sem hann segist nota mun meira en hið gamla.
„En mér finnst gaman að fara út að hjóla endrum og eins. Nú býð ég bara eftir tækifæri til þess að fá að nálgast hjólið hjá lögreglunni, hver veit nema þeir séu með heimsendingu,“ segir Ólafur hlæjandi og bætir við: „Nú læt ég dynta að því og læt það ekki frá mér, þetta er víðfrægt hjól.“