Fótbolti

Ísak Berg­mann skoraði í leik sem mátti ekki tapast en tapaðist samt

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Ísak Bergmann hefur hitað vel upp því hann byrjaði af krafti.
Ísak Bergmann hefur hitað vel upp því hann byrjaði af krafti. Fortuna Düsseldorf

Fortuna Düsseldorf varð af gríðarlega mikilvægum stigum í baráttunni um sæti í efstu deild þýska fótboltans þegar liðið tapaði 1-2 fyrir Greuther Fürth. Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði mark heimaliðsins.

Ísak Bergmann kom sínum mönnum yfir strax á 8. mínútu en Skagamaðurinn lék allan leikinn á miðju Fortuna. Valgeir Lunddal Friðriksson hóf leik í hægri bakverði en var tekinn af velli eftir að gestirnir komust yfir.

Valgeir í leiknum.Fortuna Düsseldorf

Eitthvað var einbeitingarleysið eftir markið hjá heimamönnum þar sem gestirnir jöfnuðu strax mínútu síðar. Staðan 1-1 í hálfleik.

Það var stundarfjórðungur til leiksloka skoruðu gestirnir sigurmarkið úr vítaspyrnu. Heppnin með gestunum í liði þar sem Julian Green brenndi af en Florian Kastenmeier, markvörður Fortuna, var kominn af línu sinni og því þurfti að taka spyrnuna aftur.

Green brást ekki bogalistin annað sinn og tryggði gestunum 2-1 sigur.EÍsak Bergmann nældi sér í gult spjald í uppbótartíma.

Eftir tapið er Fortuna í 6. sæti með 38 stig eftir 24 leiki. Aðeins eru fjögur stig í topplið HSV en liðin fimm ofar í töflunni eiga öll leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×