Körfubolti

Kane minnir Pavel á Craion: „Vildu bara vinna“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
DeAndre Kane og Michael Craion hafa sett svip sinn á íslenskan körfubolta.
DeAndre Kane og Michael Craion hafa sett svip sinn á íslenskan körfubolta. vísir/hulda margrét

DeAndre Kane átti frábæran leik þegar Grindavík sigraði Keflavík, 101-91, á föstudaginn. Pavel Ermolinskij líkti honum við gamlan samherja sinn úr KR.

Kane skoraði 27 stig, tók tíu fráköst, gaf sex stoðsendingar og stal boltanum fjórum sinnum í leiknum í Smáranum. Hann var með 37 framlagsstig, flest allra á vellinum.

Kane hefur spilað stórvel á tímabilinu, sérstaklega eftir að félagi hans, Jeremy Pargo, gekk í raðir Grindavíkur.

„Hann er búinn að vera virkilega flottur í vetur. Frammistaða hans í síðustu þremur leikjum, síðan að félagi hans kom - hversu tengt sem það er, maður veit ekkert um það - hefur verið ótrúlega góð, frábær,“ sagði Pavel í Bónus Körfuboltakvöldi í gær.

„Ég veit ekki hver tölfræðin hjá honum var í þessum leik en náunginn er að toga liðið áfram. Hann ber það ekki á herðum sér en hann togar alla áfram með sér á þann hátt að það þurfa allir að spila á ákveðnum hraða, ákveðinni baráttu. Hann setur svo háan standard fyrir alla liðsfélaga sína.“

Finnur strax fyrir hvað menn standa

Áhrifin sem Kane hefur minna Pavel á áhrifin sem Michael Craion hafði meðan þeir léku saman með KR.

„Þetta er einstakur leikmaður að því tillitinu til. Ég hef alltaf sagt að hann minnir mig á gamla félaga minn, Mike Craion. Þeir búa yfir mjög svipuðum karakterseinkennum. Ég get ekki talað nógu vel um DeAndre Kane sérstaklega,“ sagði Pavel en lét þess þó getið að Kane og Craion væru gerólíkir persónuleikar.

Klippa: Bónus Körfuboltakvöld - Umræða um DeAndre Kane

„Þeir eru svart og hvítt karakterslega en inni í þeim, hvernig þeir báru sig og hugsa,“ sagði Pavel og barði sér á brjóst. „Maður finnur það strax á leikmönnum fyrir hvað þeir standa og þessir tveir leikmenn vildu bara vinna. Svo voru þeir líka mjög góðir í körfubolta.“

Kane og félagar í Grindavík eru í 6. sæti Bónus deildarinnar með tuttugu stig þegar þremur umferðum er ólokið.

Innslagið úr Bónus Körfuboltakvöldi má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir

„Ég er stríðs­maður og hef lent í þessu áður“

DeAndre Kane átti frábæran leik fyrir Grindvíkinga í 101-91 sigri á Keflavík í Smáranum í kvöld. Kane var magnaður á báðum endum vallarins og hann viðurkenndi í viðtali eftir leik að leikir gegn Keflavík skiptu meira máli en aðrir leikir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×