Íslenski boltinn

Valskonur með fullt hús og markatöluna 15-1

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Valskonur eru óstöðvandi í Lengjubikarnum.
Valskonur eru óstöðvandi í Lengjubikarnum. Vísir/Diego

Valskonur héldu áfram sigurgöngu sinni í Lengjubikar kvenna í fótbolta í kvöld en þær unnu þá 5-0 sigur á Tindastól á Hlíðarenda.

Valsliðið hefur unnið þrjá fyrstu leiki sína í keppninni og skorað fjögur mörk eða fleiri í þeim öllum. Markatalan er 15-1 en liðið vann 6-0 sigur á Fram og 4-1 sigri á Fylki.

Fanndís Friðriksdóttir skoraði fyrsta markið í kvöld á 17. mínútu og Berglind Rós Ágústsdóttir bætti svo við tveimur mörkum yfir hálfleik en þau komu á 30. og 35. mínútu.

Staðan því 3-0 í hálfleik en Jasmín Erla Ingadóttir skoraði fjórða markið á 51. mínútu og Ísabella Sara Tryggvadóttir innsiglaði sigurinn úr vítaspyrnu á 82. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×