Lífið

Fullt hús og mikið fjör á frum­sýningu Þetta er Laddi

Lovísa Arnardóttir skrifar
Nína Dögg, Esther Talía, Ólafur Egill og Gísli Örn.
Nína Dögg, Esther Talía, Ólafur Egill og Gísli Örn. Vísir/Viktor Freyr

Sýningin Þetta er Laddi var frumsýnd í Borgarleikhúsinu í gær fyrir fullu húsi.

Sýningin er ævisöguleikrit á borð við Elly og Níu líf. Þar fá gestir að hitta á sviðinu persónur á borð við Eirík Fjalar, Elsu Lund, Dengsa og Skrám. Laddi og helstu gamanleikarar Borgarleikhússins leika í sýningunni auk þess sem hljómsveit undir stjórn Jóns Ólafssonar mun spila í sýningunni.

Stebbi Jak og eiginkona hans Kristín Sif. Vísir/Viktor Freyr

Á vef Borgarleikhússins segir að leikstjórinn og handritshöfundurinn Ólafur Egill hafi löngum sótt í íslenskan veruleika og sett upp hverja verðlaunasýninguna á fætur annarri þar sem hann kryfur samtímann og segir sögur þjóðarinnar. Nægir þar að nefna Níu líf og Ástu sem hann skrifaði og leikstýrði, og Elly sem hann skrifaði ásamt Gísla Erni Garðarssyni.

Í sýningunni fær hann leikkonuna og handritshöfundinn Völu Kristínu Eiríksdóttur til liðs við sig í handritsskrifin og býður svo Þórhall Sigurðsson, sjálfan Ladda, velkominn í sófann ásamt fremstu gamanleikurum Borgarleikhússins.

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri og Bubbi. Vísir/Viktor Freyr
Jóhann Alfreð grínisti í stuði með vini. Vísir/Viktor Freyr
Heiða Björg borgarstjóri og Magnús Geir þjóðleikhússtjóri með mökum. Vísir/Viktor Freyr
Bjarni Benediktsson og eiginkona hans Þóra Margrét Baldvinsdóttir. Vísir/Viktor Freyr
Ragnhildur Alda borgarfullttrúi með eiginmanni sínum Einari. Vísir/Viktor Freyr
Anna Kolfinna Kuran og Daníel Ágúst Haraldsson flott í rauðu. Vísir/Viktor Freyr
Mikið gaman. Vísir/Viktor Freyr
Ungir sem aldnir skemmtu sér með Ladda. Vísir/Viktor Freyr
Glaðir gestir. Vísir/Viktor Freyr
Bjarni og Bjarmi í stuði. Vísir/Viktor Freyr
Hilmir Snær lét sig ekki vanta. Vísir/Viktor Freyr
Karl Ágúst Úlfsson leikari með vinkonum. Vísir/Viktor Freyr
Það var skálað fyrir Ladda. Vísir/Viktor Freyr
Það var stuð á frumsýningu Ladda. Vísir/Viktor Freyr





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.