Lífið

Selur í­búðina og flytur til Eyja

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Svava Kristín kveður Stöð 2 og Reykjavík.
Svava Kristín kveður Stöð 2 og Reykjavík.

Íþróttafréttakonan Svava Kristín Grétarsdóttir hefur sett íbúð sína við Hvassaleiti 30 í Reykjavík á sölu og sagt starfi sínu lausu á Stöð 2. Sem einstæð móðir lítillar stúlku hefur hún ákveðið að flytja til Vestmannaeyja, þar sem fjölskylda hennar býr.

Í færslu rifjar Svava Kristín upp tímann sem hún starfaði hjá Sýn og segist kveðja vinnustaðinn og samstarfsfélaga með miklum söknuði. Hún líkir skrifunum við minningargrein.

„Ég er svo sorgmædd en á sama tíma svo þakklát fyrir allan þennan tíma á Stöð 2. Þetta var drauma vinnan mín en í dag er ég að sinna drauma hlutverkinu, að vera mamma, einstæð móðir í Reykjavík með ekkert leikskólapláss og allt baklandið í Vestmannaeyjum. Það þýðir bara eitt, ég er á leiðinni heim,“ skrifar Svava. 

Svava deilir fasteigninni á Facebook og segist helst vilja flytja íbúðina með sér til Vestmannaeyja. 

Umrædd eign er 169 fermetrar að stærð á fyrstu hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi sem var byggt árið 1960. 

Stofa og borðastofa flæða saman í opið og bjart rými með stórum gluggum. Þaðan er útgengt á góðar svalir til vesturs. Eldhúsið er opið við stofu, prýtt stílhreinni svartri háglans innréttingu með góðu skápplássi og flísum á veggjum. Samtals eru fimm svefnherbergi og eitt baðherbergi.

Ásett verð fyrir íbúðina er 110 milljónir.

Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.