Sport

Strákurinn vann þrjá bikara á einni viku

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Luke Littler er að gera magnaða hluti í pílukastinu þessa dagana.
Luke Littler er að gera magnaða hluti í pílukastinu þessa dagana. AFP/Ben STANSALL

Luke „The Nuke“ Littler er á svakalegu skriði í pílukastinu þessa dagana og strákurinn hefur átt magnaða viku.

Littler, sem er aðeins átján ára, og yngsti heimsmeistari sögunnar, vann opna belgíska mótið í gær.

Hann hafði áður unnið fimmta kvöld ensku úrvalsdeildarinnar á fimmtudag og viku áður fagnaði hann sigri á opna breska mótinu.

Þrír bikarar á einni viku.

Hann vann 11-2 sigur á James Wade í úrslitaleik opna breska mótsins, 6-3 sigur á Nathan Aspinall í úrslitaleiknum á fimmta kvöldi úrvalsdeildarinnar og 8-5 sigur á Mike De Decker í úrslitaleiknum á opna belgíska mótinu.

Frá því að heimsmeistaratitilinn kom í hús hjá Littler í byrjun ársins þá hefur strákurinn unnið tvö kvöld í úrvalsdeildinni og tapað einum úrslitaleik að auki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×