Viðskipti innlent

Spá því að stýrivextir verði lækkaðir um 25 punkta

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka.
Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Vísir/Vilhelm

Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að stýrivextir Seðlabankans verði lækkaðir um 0,25 prósentur við næstu ákvörðun peningastefnunefndar 19. mars. Telur hún að vaxtalækkunarferli Seðlabankans muni skila stýrivöxtum í 6,5 prósent í árslok 2025.

Spá greiningardeildar Íslandsbanka birtist í tilkynningu á vef bankans í dag. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, skrifar spánna.

Telur greiningardeildin að við ákvörðun nefndarinnar muni togast á annars vegar merki um minni spennu í hagkerfinu og hjöðnun verðbólgu og hins vegar þrálátt háar verðbólguvæntingar og vísbendingar um seiglu í eftirspurn.

„Meginvextir bankans, vextir á 7 daga bundnum innlánum, verða samkvæmt því 7,75% og hafa stýrivextir þá lækkað um 1,5 prósentur frá síðasta hausti, gangi spáin eftir. Stutt er frá síðustu vaxtaákvörðun í byrjun febrúar og fátt hefur gerst í millitíðinni sem ætti að breyta sýn peningastefnunefndar á hæfilegt peningalegt aðhald verulega,“ segir í spánni.

Miðað við spá Íslandsbanka mun vaxtalækkunarferli Seðlabankans skila stýrivöxtum í 6,5 prósent í árslok 2025 og ljúka með vexti á bilinu 5,0 – 5,5 prósent um mitt næsta ár.

Verðbólga hjaðnar en verðbólguvæntingar enn allháar

Greiningardeildin segir hjöðnun verðbólgu það sem af er ári hafa verið nokkurn veginn í takti við væntingar. Það sé „peningastefnunefndinni væntanlega nokkurt fagnaðarefni,“ segir í spánni. 

Ársverðbólga hafi mælst í febrúar 4,2 prósent og sé verðbólgan því 0,4 prósentum minni en hún var fyrir síðustu vaxtaákvörðun í byrjun febrúar. Mælikvarðar á undirliggjandi verðbólgu hafi einnig lækkað í nýjustu mælingu Hagstofunnar.

„Eftir sem áður teljum við að verðbólga muni halda áfram að hjaðna fram á sumar enda detta allstórir hækkunarmánuðir úr 12 mánaða takti vísitölu neysluverðs (VNV) á sama tíma og hægari hækkunartaktur launa, hjaðnandi verðbólga erlendis og betra jafnvægi á íbúðamarkaði ættu að skila heldur hóflegri hækkun VNV milli mánaða,“ segir í spánni.

Hins vegar á greiningardeildin von á því að síðasti áfanginn í hjöðnun verðbólgu niður í markmið Seðlabankans verði torsóttur og „verðbólgan verði að jafnaði heldur yfir markmiðinu fremur en hitt næstu misserin“.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×