Hafa gert ýmislegt til að bæta stöðuna í Breiðholti Bjarki Sigurðsson skrifar 14. mars 2025 11:45 Steinn Jóhannsson er sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Vísir/Samsett Sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar harmar að börn séu ítrekað að beita önnur börn ofbeldi í Breiðholti. Borgin og skólayfirvöld hafi gert ýmislegt til að reyna að bregðast við ástandinu.
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær var rætt við móður drengs í 7. bekk við Breiðholtsskóla. Drengurinn hafði í fyrsta sinn í langan tíma hætt sér einn út að leika en var barinn af fimm drengjum á leikvelli við skólann. Einn þeirra er samnemandi hans en aðrir úr öðrum skólum. „Ég hef bara aldrei séð jafn mikinn ótta í augum nokkurs annars. Þetta var bara hrikalegt. Hann grátbað mig um að við fengjum að flytja í burtu,“ sagði Esther Einarsdóttir, móðir drengsins. Hópur drengja hefur haldið hverfinu í heljargreipum síðustu mánuði. Foreldri hafa lýst því að þeim finnist yfirvöld bregðast takmarkað við ástandinu og að gerendurnir haldi áfram að brjóta af sér sama hvað. Steinn Jóhannsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, segir ýmislegt hafa verið reynt. „Við endurskoðuðum hópaskiptingu og fundum úrræði fyrir nemendur sem á að svara þeirra kröfum. Þjónusta við hæfi og þeir þurftu á að halda. Við þurftum að finna úrræði í öðrum skóla, það var eitt sem við gerðum. Við erum með aukna aðkomu kennara skólans að þessum árgangi sem hefur komið mikið við sögu í fjölmiðlum. Við erum með aukin einstaklingsúrræði þarna, við höfum staðið fyrir hópefli fyrir árganginn, við höfum verið með félagsfærninámskeið sem er á vegum félagsmiðstöðvanna,“ segir Steinn. Einnig hafi verið forvarnarfræðsla, foreldrafræðsla og fleira. Með þessu hafi ástandið innan veggja skólans bæst verulega. „Það er allt annað andrúmsloft í skólanum núna og hefur verið upp á síðkastið. Það hefur ríkt nokkuð góður friður í skólastarfinu, en auðvitað hörmum við þau atvik sem hafa komið við sögu utan skólatíma,“ segir Steinn. Fyrir mánuði síðan sagði Steinn borgina ekki hafa gripið nógu hratt inn í gang mála í Breiðholti. Síðasta mánuðinn hafi staðan þó skánað verulega. „Þessar birtingarmyndir ofbeldis sem eru að gerast utan skólatíma, það er eitthvað sem við viljum alls ekki sjá í okkar samfélagi. Við þurfum sem samfélag að berjast gegn slíku,“ segir Steinn.
Skóla- og menntamál Ofbeldi barna Börn og uppeldi Reykjavík Mest lesið Fjársöfnunin á borð lögreglu í enn eitt skiptið Innlent Ingibjörg æf vegna bókunar meirihlutans í borginni Innlent Bað Pútín um að hlífa hermönnum sem enginn kannast við Erlent Dregur ummælin til baka og biðst afsökunar Innlent Svara fyrir hylmingu í einu stærsta þjófnaðarmáli Íslandssögunnar Innlent Segir ummæli Ásthildar Lóu ekki samræmast stöðu hennar Innlent Reyndu að þvinga mann til að taka úr hraðbanka Innlent Fara fram á gæsluvarðhald yfir þeim fjórða Innlent Lúffar af ótta við enn meira niðurrif Trumps Erlent Egill Heiðar ráðinn Borgarleikhússtjóri Innlent Fleiri fréttir Stóraukið búðarhnupl, fjölgun í haldi og aldamótagoð í beinni Einn slasaðist þegar öryggi fór af hjá Norðuráli Reyndu að þvinga mann til að taka úr hraðbanka Sá fimmti fer fyrir dómara í kvöld Fagnar að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd skoði byrlunarmálið Egill Heiðar ráðinn Borgarleikhússtjóri Ingibjörg æf vegna bókunar meirihlutans í borginni Vísa ummælum á bug og telja upp aðgerðir Fara fram á gæsluvarðhald yfir þeim fjórða Byggðajöfnunarmál að fækka sýslumönnum Lax slapp úr sjókví fyrir austan Segir samningsviljann hjá leikfélaginu engan „Geri ráð fyrir að þetta séu ummæli sem féllu í hita leiksins“ Býður út næstsíðasta áfanga vegagerðar í Gufudalssveit Fjársöfnunin á borð lögreglu í enn eitt skiptið Dregur ummælin til baka og biðst afsökunar Hafi gert ýmislegt til að bæta stöðuna í Breiðholti Byrlunarmálið og ofbeldi í Breiðholti Segir ummæli Ásthildar Lóu ekki samræmast stöðu hennar Almennt á móti rekstri spilakassa en tryggja þurfi fjármögnun Vilja vita hvort Jón Gunnarsson hafi brotið siðareglur þingmanna Vill rannsóknarnefnd Alþingis vegna byrlunarmálsins „Ég er rasandi hissa á þessu“ Leit hætt í Borgarnesi og staðan metin með morgninum Svara fyrir hylmingu í einu stærsta þjófnaðarmáli Íslandssögunnar Lögregla bíður þess enn að geta farið til Dóminíska lýðveldisins „Stefnir í að árið í ár verði það versta á öldinni“ Björgunarsveitir við leit í Borgarnesi Vill hefja undirbúning næstu kjarasamninga strax Samfélagslögga flakkar á milli „heitra reita“ og eltir hópamyndun Sjá meira