Miklu var til tjaldað á Ölveri á sunnudag þar sem stuðningsmenn Newcastle tóku daginn snemma og hófu upphitun í hádeginu fyrir úrslitaleik liðsins við Liverpool í enska deildabikarnum sem fram fór seinni partinn.
Newcastle vann leikinn 2-1 og þar með fyrsta titil liðsins frá árinu 1955. 70 ára bið er því á enda og gleðin leyndi sér ekki í leikslok.
„Margir af mínum góðu vinum hafa verið að senda mér kveðju, ég er nú alltaf sá eini sem held með þessu liði í mínum vinahóp. En nú hafa stigið fram upp á síðkastið margir Newcastle-menn, viðurkenna það loksins núna fyrir alþjóð að þeir séu Newcastle-menn. Enda hefur klúbburinn verið rifinn upp,“ segir Kolbeinn Reginsson, sem hefur stutt svarthvíta félagið í rúma fimm áratugi og er meðlimur í Newcastle-klúbbnum sem stóð að gleðinni á Ölveri.

„Við endurvöktum stuðningsmannaklúbbinn og Kristinn Bjarnason, formaður, á heiður skilinn fyrir að rífa þetta í gang. Við vorum með stórkostlega sigurhátíð í kvöld og það varð úr, þetta var gríðarleg sigurhátíð,“ bætir Kolbeinn við.
Allt trylltist áður en tárin fóru að renna
Eftir mikla dagskrá tók leikurinn við þar sem liðið lék frábærlega og hreinlega pakkaði toppliði ensku úrvalsdeildarinnar, Liverpool, saman og vann úrslitaleikinn verðskuldað. Tilfinningarnar voru miklar hjá stórum hópi stuðningsmanna liðsins.
„Þetta eru kannski ekki trúarbrögð en ástríðan sem fylgir því að halda með svona liði gefur manni eitthvað og fallegt hvernig samfélagið tók á þessu í gær,“ segir Kolbeinn og bætir við:

„Þetta var mikill spenningur, gríðarlegur spenningur. Við áttum þetta alveg í hendi. Dan Burn af öllum skallaði hann laglega í markið og það trylltist allt. Menn grétu. Þeir létu tilfinningarnar ráða,“
„Fyrir okkur Newcastle-menn er þetta eins og Vestmannaeyjagosið, þar er það fyrir og eftir gos, hjá okkur fyrir og eftir titil. Þetta er gríðarlega ánægjulegt,“ segir Kolbeinn.
Meira háð með komu internetsins
Það hefur gengið á ýmsu hjá félaginu síðustu áratugi. Newcastle var hársbreidd frá enskum meistaratitli í stjóratíð Kevins Keegan á tíunda áratugnum en þurfti að horfa á eftir titlinum í hendur Sir Alex Ferguson.
Umdeildur eigandi, Mike Ashley, keypti félagið eftir aldamót og við tóku öldudalir sem fylgdu fall úr efstu deild. Það hefur því ekki alltaf verið dans á rósum að styðja þetta félag.
„Þetta hefur verið gríðarlega strembið að falla þarna nokkrum sinnum og háðsglósurnar sem maður er að fá, sérstaklega þegar internetið kom, var sérstaklega auðvelt að senda manni svona háðsglósur. En við höfum tekið það allt á kassann en nú getum við staðið keikir og sagt að við séum komnir í stóra klúbbinn. Ég held að þetta sé ekkert búið og við getum gert tilraunir að titlum í framtíðinni,“ segir Kolbeinn meðal annars.
Fleira kemur fram í viðtalinu sem má sjá í heild sinni í spilaranum.