Enski boltinn

Fyrsti titill Slot í boði en Newcastle búið að biða í 56 ár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Arne Slot er knattspyrnustjóri Liverpool sem reynir í dag að koma í veg fyrir að stuðningsmenn Newcastle geti endað 56 ára bið eftir titli.
Arne Slot er knattspyrnustjóri Liverpool sem reynir í dag að koma í veg fyrir að stuðningsmenn Newcastle geti endað 56 ára bið eftir titli. AFP/HENRY NICHOLLS/ Paul ELLIS

Liverpool og Newcastle spila í dag til úrslita í enska deildabikarnum og fer leikurinn fram á Wembley leikvanginum.

Arne Slot getur þarna unnið sinn fyrsta titil sem knattspyrnustjóri Liverpool en Liverpool hefur samt titil að verja því liðið vann enska deildabikarinn undir stjórn Jürgen Klopp í fyrra.

Slot vann titil á tveimur síðustu tímabilum sínum með Feyenoord, hollenska bikarinn í fyrra og hollenska meistaratitilinn árið á undan.

Liverpool og Slot þekkja það að vinna titla síðustu ár en sömu sögu er ekki að segja af mótherjum þeirra í Newcastle.

Stuðningsmenn Newcastle hafa þurft að bíða eftir titli í 56 ár.

Það eru líka tíu ár síðan eitthvað annað lið en Manchester City, Manchester United eða Liverpool hafa unnið enska deildabikarinn.

Síðasti titill Newcastle kom í hús þear liðið vann Inter-Cities Fairs Cup sem var Evrópukeppni fyrri tíma sem entist ekki lengi.

Síðasti titill félagsins í enska boltanum var aftur á móti enski bikarinn sem liðið vann 1955 eða fyrir sjötíu árum síðan.

Þetta er annar úrslitaleikurinn sem Eddie Howe kemur Newcastle liðinu í en liðið tapaði fyrir Manchester United í úrslitaleik enska deildabikarsins fyrir tveimur árum.

Leikurinn hefst klukkan 16.00 og verðu fylgst með honum hér á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×