Fótbolti

Hin­rik skoraði í fyrsta lands­leik og Ís­land skellti Ung­verjum

Sindri Sverrisson skrifar
Hilmir Rafn Mikaelsson kom Íslandi á bragðið gegn Ungverjum í dag og kom einnig að öðru marki liðsins, í sínum tíunda U21-landsleik.
Hilmir Rafn Mikaelsson kom Íslandi á bragðið gegn Ungverjum í dag og kom einnig að öðru marki liðsins, í sínum tíunda U21-landsleik. vísir/Anton

Íslenska U21-landsliðið í fótbolta karla vann frábæran 3-0 sigur gegn Ungverjalandi í vináttulandsleik á Pinatar Arena, nærri Torrevieja á Spáni, í dag.

Íslenski hópurinn hefur verið við æfingar á svæðinu og leikur þar annan vináttulandsleik á þriðjudag, gegn Skotum. Í millitíðinni spilar A-landslið Íslands í borginni Murcia, við Kósovó á sunnudaginn.

Sigur Íslands í dag var sannfærandi en liðið komst yfir eftir korters leik. Helgi Fróði Ingason lék þá svo illa á varnarmann Ungverja að hann rann á rassinn, og sendi svo fyrirgjöf inn í teiginn þar sem Hilmir Rafn Mikaelsson, fyrsti atvinnumaðurinn frá Hvammstanga, var og skoraði með hörkugóðum skalla.

Ísland komst svo í 2-0 á 36. mínútu eftir aðra góða sókn fram vinstra megin. Helgi Fróði gaf á Daníel Frey Kristjánsson sem sendi fyrir markið og þar reyndi fyrirliði Ungverja að koma í veg fyrir að Hilmir Rafn næði boltanum en skoraði þá klaufalegt sjálfsmark.

Hinrik Harðarson, einn nýjasti atvinnumaður Íslands, kom svo inn á í sínum fyrsta leik í bláu treyjunni þegar hann leysti Benoný Breka Andrésson af hólmi í hálfleik. Hann fann netmöskvana í sínum fyrsta landsleik.

Hinrik skoraði þriðja mark Íslands á 70. mínútu með góðu skoti í stöng og inn eftir frábæra skyndisókn. Ungverjar tækluðu tvo Íslendinga niður á leiðinni fram völlinn en dómarinn gerði vel í að leyfa leiknum að halda áfram sem skilaði sér í marki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×