Handbolti

„Bestu liðin hafa ekkert að fela og deila upp­lýsingum“

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þórir Hergeirsson segir betra að deila upplýsingum en fela.
Þórir Hergeirsson segir betra að deila upplýsingum en fela. Vísir/Vilhelm Gunnarsson

Sigursælasti handboltaþjálfari sögunnar, Þórir Hergeirsson, segir að lykillinn að árangri sé að vera í góðu samstarfi við helstu keppinauta sína.

Þórir lét af starfi sem þjálfari kvennalandsliðs Noregs í lok síðasta árs en undir hans stjórn vann liðið ellefu stórmót. Það kemur eflaust mörgum á óvart að hann deili upplýsingum með helstu keppinautum sínum.

„Það eru engin leyndarmál í þessu. Allan minn tíma í landsliðinu þá hef ég alltaf reynt að vera í góðri samvinnu við bestu andstæðingana,“ segir Þórir og það er ástæða fyrir því.

„Við höfum deilt upplýsingum í báðar áttir. Það hjálpar okkur að verða betri. Mín reynsla úr afreksíþróttum er að þeir bestu deila. Þeir hafa ekkert að fela.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×