Starfshópurinn á einnig að rýna í árangur verkefnisins „húsnæði fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur“ og gera tillögur að hugsanlegum breytingum, nýjum svæðum til lóðaúthlutana eða annarra leiða til að fjölga slíkum íbúðum og úthlutunarreglum fyrir annan fasa verkefnisins.
Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands og Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB undirrituðu viljayfirlýsingu í morgun þess efnis. Í tilkynningu frá borginni kemur fram að með þessari viljayfirlýsingu vilji verkalýðshreyfingin og Reykjavíkurborg hefja nýja sókn í húsnæðismálum.

Auk borgarstjóra og fulltrúa verkalýðshreyfinganna tveggja undirrituðu fulltrúar meirihlutans einnig undir yfirlýsinguna, þær Dóra Björt Guðjónsdóttir, Pírötum, Helga Þórðardóttir, Flokki fólksins, Líf Magneudóttir, Vinstri grænum og Sanna Magdalena Mörtudóttir, Sósíalistaflokki.
Verkalýðsfélögin og Reykjavíkurborg hafa síðustu ár unnið saman með stofnun íbúðafélaganna Bjargs og Blæs en borgin úthlutaði stofnframlögum í formi fjölmargra lóða til uppbyggingar almennra íbúða í eigu þessara félaga. Í tilkynningu segir að síðan þá hafi á annað þúsund íbúða verið úthlutað til efnaminni fjölskyldna á vinnumarkaði. Eftirspurnin eftir íbúðum hjá íbúðafélögunum sé enn mikil og biðlistar hjá báðum félögum.

Skilar tillögum í maí
Komið verður á fót starfshópi, sem verður skipaður tveimur fulltrúum frá hverjum þessara aðila, sem er ætlað að setja fram hugmyndir að verkefnum sem geta skapað sóknarfæri í núverandi ástandi.
Helstu verkefni starfshópsins eru:
• Kanna hvort hægt er að flýta uppbyggingu húsnæðis í Úlfarsárdal (M22) með aðkomu innviðasjóðs í eigu lífeyrissjóða.
• Kortlagning mögulega áframhaldandi uppbyggingu íbúðahúsnæðis til næstu 10-15 ára, sem meðal annars byggist á þeim sóknarfærum sem skapast á grunni uppfærðs samgöngusáttmála.
• Rýna árangur verkefnisins „húsnæði fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur“ og gera tillögur að hugsanlegum breytingum, nýjum svæðum til lóðaúthlutana eða annarra leiða til að fjölga slíkum íbúðum og úthlutunarreglum fyrir annan fasa verkefnisins.
Starfshópurinn hefur samkvæmt tilkynningu störf strax og er stefnt að því að hann skili niðurstöðum í lok maí. Aðilar eru sammála um að þegar niðurstöður starfshópsins liggja fyrir verði metið hvort og þá á hvaða grunni verði unnið áfram með niðurstöðurnar.