Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar, greindi frá þessu í Facebook-færslu um níuleytið í gærkvöldi.
„Bókun 35, málið sem tryggir rétta framkvæmd EES samningsins hér á landi er komið út úr nefnd. Búið að vera allt of mikill óþarfa vandræðagangur að klára þetta hjá síðustu ríkisstjórnum. Gaman að vera partur af þingmeirihluta sem getur þokað hlutum áfram,“ skrifaði Pawel í færslunni.
Önnur umræða bíður
Lagafrumvarpið var lagt fram í tíð fyrri ríkisstjórnar en hlaut þá ekki afgreiðslu. Þá var einnig lögð fram skýrsla á Alþingi sem fjallar um lykilþætti málsins sem varðar innleiðingu og framkvæmd bókunar 35 hér á landi.
Efnislega gengur bókun 35 út á að ef lagasetning sem byggir á EES-samningnum og önnur lög stangast á gildi þau fyrri, nema Alþingi hafi tekið skýrt fram að svo sé ekki.
Lagafrumvarpið hefur verið hjá utanríkismálanefnd frá 11. febrúar síðastliðnum. Nú er búið að útbýta nefndaráliti og bíður málið 2. umræðu í þinginu.
Hörð andstaða var við frumvarpið í tíð síðustu ríkisstjórna meðal nokkurra þingmanna Sjálfstæðisflokksins en ekki síst í röðum Miðflokks og Flokks fólksins. Eyjólfur Ármannsson, núverandi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, var þar fyrirferðarmikill í andstöðu sinni en hann var einnig í forsvari samtakanna Orkan okkar sem „afþakka erlent vald í orkumálum“.
Eyjólfur var spurður út í bókun 35 að loknum fyrsta ríkisstjórnarfundi ríkisstjórnarinnar á þorláksmessu 2024 og sagðist hann þá mundu greiða atkvæði með frumvarpi ríkisstjórnarinnar.
„Utanríkisráðherra mun leggja fram bókunina og hún verður samþykkt af þessari ríkisstjórn. Það er einhugur um það í ríkisstjórn að samþykkja bókun 35. Það sé mikilvægt meðal annars út af ákveðnum málum sem nú eru í réttarkerfinu, það þarf að gera það,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra að loknum þessum sama ríkisstjórnarfundi.