Íslandsmeistaramótið í 50 metra laug hófst í kvöld með látum í í Laugardalslauginni.
Birnir Freyr Hálfdánarson synti 100 metra flugsund á nýju Íslandsmeti, 53,29 sekúndum, en gamla metið var 53,42 sekúndur og í eigu Arnar Arnarsonar. Hann setti það árið 2006.
Birnir er í SH eins og Örn var á sínum tíma. Hann er einmitt fæddur 26. maí 2006 en Örn setti þetta met í ágúst sama ár eða þegar Birnir var bara tæplega þriggja mánaða.
Birnir lét sér ekki nægja að setja nýtt Íslandsmet því hann synti einnig undir lágmarki á heimsmeistaramótið.
Snorri Dagur Einarsson vann 100 metra bringusund á tímanum 1:00,67 mín. var aðeins 4/100 frá Íslandsmeti Antons Sveins McKee. Snorri Dagur synti einnig undir lágmarki á HM í sumar sem fer fram í Singapore.
Ylfa Lind Kristmannsdóttir vann 50 metra baksund kvenna á tímanum 29,91 sekúndum og tryggði sér lágmark á Evrópumeistaramóti unglinga sem fram fer í sumar.
Vala Dís Cicero sigraði í 400 metra skriðsundi á tímanum 4:27,37 mín. eftir harða keppni við Freyju Birkisdóttur sem kom önnur í bakkann á tímanum 4:27,82 mín.
Magnús Víðir Jónsson sigraði með yfirburðum í 400 metra skriðsundi karla á tímanum 4:08,60 mín. Sólveig Freyja Hákonardóttir sigraði í 200 metra flugsundi á tímanum 2:26,85 mín.
Eva Margrét Falsdóttir sigraði í 200 metra bringusundi á tímanum 2:35,26 mín. sem er góð bæting á hennar besta tíma.
Guðmundur Leó Rafnsson sigraði örugglega í 200 metra baksundi á tímanum 2:02,20 mín, Guðmundur stórbætti sig í undanrásunum í morgun þegar hann synti á 2:02,08 mín.
Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Snæfríður Sól Jórunnardóttir háðu mikla keppni í æsispennandi 50 metra skriðsundi þar sem Jóhanna Elín kom fyrst í bakkann á tímanum 25,67 sekúndum. Símon Elías Statkevicius kom fyrstur í mark í 50 metra skriðsundi á nýju persónulegu meti, tíminn 22,84 sekúndur.
Kvenna sveit SH kom fyrst í mark í 4x 200m skriðsundi á tímanum 8:39,67 mín en sveitina skipuðu þær Nadja Djurovic, Katja Lilja Andryisdóttir, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Vala Dís Cicero.
Karlasveit SH vann 4x200 metra skriðsund karla á tímanum 7:41.05 mín. Þeir bættu þar með 11 ára gamalt met sveitar Fjölnis sem átti tímann 7:46,24 mín.
Sveitina skipuðu þeir: Ýmir Chatenay Sölvason, Magnús Víðir Jónsson, Birnir Freyr Hálfdánarson og Veigar Hrafn Sigþórsson.