Logi hefur verið með annan fótinn í Los Angeles undanfarin ár og bjó þar á undan í London auk þess sem hann hefur flakkað víða um heim fyrir kvikmyndaverkefni. Hann er mikill aðdáandi tónlistarkonunnar Charli XCX og skellti sér fyrst og fremst á Coachella til að sjá ofurstjörnuna slá í gegn á sviðinu.

Myndband af hjúunum hefur vakið mikla athygli á TikTok og sést þar Logi dansa við hlið þeirra við gríðarlegt vinsælt lag Charli XCX I Love It ásamt vinum sínum.
Charli birti svo myndir úr eftirpartýi sem hún hélt á Coachella þar sem sjá mátti Loga ásamt leikkonunni Anyu Taylor-Joy og öðrum stuðboltum. Tískurisinn Vogue birti myndina sömuleiðis á vefsíðu sinni.

Það væsir ekki um Loga í Hollywood þar sem hann vinnur að spennandi verkefnum og nýtur lífsins. Hann var nýverið gestur í afmælispartýi Paris Hilton og Snoop Dogg lét sig heldur ekki vanta þangað.

Logi virðist hafa þekkt Paris Hilton í einhvern tíma en hann birti mynd af þeim saman á Coachella hátíðinni árið 2019.
