Tvö mörk á þremur mínútum sendu Inter í undanúrslit Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 16. apríl 2025 18:30 Martínez er vel liðinn í Mílanó. EPA-EFE/DANIEL DAL ZENNARO Inter Milan er komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 2-2 jafntefli á heimavelli gegn Bayern München. Inter vann fyrri leik liðanna í Þýskalandi 2-1 og er því komið áfram þar sem það mætir Barcelona. Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Harry Kane gestunum yfir og staðan orðin 2-2 í einvíginu. Hinn sjóðheiti Lautaro Martínez jafnaði metin á 58. mínútu og þremur mínútum síðar kom Benjamin Pavard heimamönnum 2-1 yfir. Eric Dier jafnaði metin fyrir Bayern þegar stundarfjórðungur lifði leiks en Bayern tókst ekki að knýja fram sigurmark til að koma einvíginu í framlengingu. Lokatölur í Mílanó 2-2 og Inter vinnur því einvígið 4-3. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Fótbolti