Skoðun

Börn í skugga stríðs

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Í myrkri átakanna á Gaza má greina þau sem verða verst úti – börnin. Þau sem fæddust í heim þar sem hvorki öryggi né von er fyrir hendi. Samkvæmt UNICEF hafa tugþúsundir barna á Gaza misst líf sitt, limi, foreldra, heimili og tækifæri til að lifa hefðbundna barnæsku. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna, sáttmáli sem flest ríki heims hafa undirritað, kveður á um rétt allra barna til lífs, menntunar, verndar og þátttöku í samfélaginu. En hvar eru þessi réttindi nú?

Barnasáttmálinn kveður skýrt á um rétt barna til lífs, verndar, menntunar, heilbrigðisþjónustu, þátttöku og friðsamlegs uppvaxtar. Sérstaklega má nefna 6., 19., 28. og 38. grein sáttmálans sem vernda börn gegn ofbeldi, tryggja þeim aðgang að menntun og vernd í stríðsátökum. Núverandi ástand á Gaza brýtur í bága við allar þessar greinar.

Hryllingur bernskunnar

Börn sem áður héldu í leikföng, halda nú í líf sitt. Þau sofa undir opnum himni, hrædd, svöng og í sorg. Þau hafa misst skólana sína, vini sína, föður, móður – og trú á réttlæti. Mannskæðar loftárásir, brot á mannúðarlögum og stöðugt óöryggi skapa djúp sálræn og líkamleg sár sem munu fylgja börnum í gegnum lífið, ef þau lifa það af.

Íslenskur raunveruleiki minnir okkur á mikilvægi friðar og mannréttinda. Menntakerfið okkar byggir á hugmyndafræði þar sem velferð barnsins, heildrænar þroskaþarfir og menntun eru í forgrunni og þar sem lýðræði og mannréttindi eru kennd sem grunnstoðir samfélagsins. Í því ljósi er ómögulegt að líta fram hjá þeirri stöðu sem börn á Gaza standa frammi fyrir.

Brotin loforð heimsins

Við sem samfélag, sem alþjóðasamfélag, getum ekki samþykkt að horfa þegjandi á. Við verðum að spyrja okkur: Hvað er verðmætara en að verja og standa með börnum? Hver er trúverðugleiki Barnasáttmálans ef hann ver ekki þau sem hann á að verja best? Og hvernig útskýrum við fyrir næstu kynslóð af hverju við þögðum þegar börn voru myrt og framtíð þeirra stolið?

Til að endurvekja von og reisn verður að tryggja tafarlausa vopnahlé, mannúðaraðstoð og uppbyggingu sem tekur mið af þörfum barna og fjölskyldna þeirra. En einnig þurfum við að horfast í augu við ábyrgð okkar og þegjandi samþykki og breyta í virka þátttöku, þrýsting og samstöðu. Ekkert barn á að alast upp í sprengjuhelvíti. Ekkert barn á að missa fjölskyldu sína og framtíð sína vegna pólitískra hagsmuna. Ekkert barn má gleymast.

Við verðum að standa með börnunum – ekki sem áhorfendur, heldur sem verndarar.

Höfundur er kennari og ritari VG




Skoðun

Skoðun

Skjárinn og börnin

Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

Sjá meira


×