Erlent

Raf­magns­leysið „for­dæma­laust“ en engar vís­bendingar um tölvuárás

Kjartan Kjartansson skrifar
Áhorfendur á alþjóðlegu tennismóti í Madrid vafra um í myrkri. Leik var frestað vegna rafmangsleysisins.
Áhorfendur á alþjóðlegu tennismóti í Madrid vafra um í myrkri. Leik var frestað vegna rafmangsleysisins. AP/Manu Fernández

Samgöngur hafa lamast víða á Spáni og í Portúgal vegna rafmagnsleysis sem er sagt „fordæmalaust“. Spænsk yfirvöld segja að það gæti tekið fram á nótt að koma rafmagni á aftur alls staðar. Portúgalir segja ekkert benda til að um tölvuárás hafi verið að ræða.

Rafmagn byrjaði að slá út á Íberíuskaga upp úr hádegi að staðartíma í dag. Truflanirnar hafa náð út um allan Spán og Portúgal fyrir utan spænsku eyjaklasana í Atlantshafi og Miðjarðarhafi. Orsakir rafmagnsleysisins liggja ekki fyrir en á meðal þess sem er rannsakað er hvort að tölvuárás hafi valdið því.

Lestar- og flugsamgöngur liggja niðri víða, umferðarteppur hafa myndast vegna dauðra umferðarljósa og þá hefur ekki verið hægt að hringja úr farsímum vegna rafmagnsleysisins. Sjúkrahús hafa þurft að reiða sig á varaaflstöðvar til þess að halda áfram starfsemi og víða hefur þurft að bjarga fólki úr lyftum og neðanjarðarlestum sem stöðvuðust þegar rafmagn sló út í dag.

Eduardo Prieto, framkvæmdastjóri hjá spænska dreififyrirtækinu Red Eléctrica, segir AP-fréttastofunni að rafmagnsleysið sé fordæmalaust að umfangi. Fátítt er að rafmagni slái út svo víða á Íberíuskaga þar sem um fimmtíu milljónir manna búa. Ekki liggur fyrir hversu margir eru án rafmagns.

Fyrirtækið hefur sagt að það gæti tekið sex til tíu klukkustundir að koma rafmagni á aftur alls staðar. Spenna er þó komin aftur á á sunnan- og norðanverðum Íberíuskaganum. Það hefur ekki útilokað að um tölvuárás hafi verið að ræða.

Í Portúgal segir netöryggisstofnun landsins að engar vísbendingar séu um að tölvuárás sé orsök rafmagnsleysisins. Þar hefur dreififyrirtæki landsins rakið truflanirnar til biluna í evrópska dreifikerfinu.

Umferðaröngþveiti í miðborg Lissabon í Portúgal. Slökknað hefur á umferðarljósum víða um Spán og Portúgal og umferðarhnútar myndast vegna þess.AP/Armando Franca

Sitja á neyðarfundum

Ríkisstjórnir beggja landa hafa komið saman til neyðarfundar í dag. Þjóðaröryggisráð Spánar var jafnframt kallað saman vegna rafmagnsleysisins. Landsmenn hafa verið hvattir til þess að forðast óþarfa ferðir vegna öngþveitisins.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segist hafa verið í sambandi við bæði spænsk og portúgölsk stjórnvöld vegna ástandsins. Samband evrópskra raforkuflutningsfyrirtækja vinni að því að komast að rót vandans.

Reuters-fréttastofan segir að meiriháttar rafmagnsleysi af þessu tagi sé fátítt í Evrópu. Allur Ítalíuskagi var rafmagnslaus í hálfan sólarhring eftir að tré felldi háspennulínu á milli Sviss og Ítalíu árið 2003.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×