Innlent

Konan „terrorí­seri“ alla í hryllings­húsinu

Bjarki Sigurðsson skrifar
Jón Daníelsson furðar sig á því að dóttir sín sé borin út á meðan kona sem hrellir alla íbúa hússins fái að búa þar áfram.
Jón Daníelsson furðar sig á því að dóttir sín sé borin út á meðan kona sem hrellir alla íbúa hússins fái að búa þar áfram. Vísir/Bjarni

Faðir konu sem á að bera út úr íbúð Félagsbústaða segir aðra konu sem býr í fjölbýlishúsinu halda nágrönnum í heljargreipum. Hann furðar sig á takmörkuðum viðbrögðum yfirvalda.

Nágranninn, sem er síbrotakona á fertugsaldri, hefur gengið berserksgang um húsið og reynt að brjótast inn í flestar íbúðirnar þar. Hún er meðal annars sögð hafa brotist inn hjá 76 ára konu sem lá þá á spítala og stolið hálfri búslóðinni. DV hefur fjallað ítarlega um mál konunnar síðustu ár. 

„Það þarf að taka í taumana, það þarf að grípa inn í þetta. Það skiptir í sjálfu sér ekki höfuð máli hvort dóttir mín er borin út eða ekki, því ástandið á stigaganginum er algjörlega óviðunandi. Og að það sé ekkert gert árum saman,“ segir Jón Daníelsson, faðir konunnar sem á að bera út.

Hann kallar eftir sterkari viðbrögðum frá lögreglunni og Félagsbústöðum.

„Eftir þeim fréttum sem ég hef séð, þá ættu að finnast næg vitni um framgöngu þessarar ríflegra þrítugu konu sem býr hérna. Og terroríserar alla íbúana,“ segir Jón. 

Dóttir Jóns hefur glímt við fíknivanda í mörg ár og er í virkri neyslu. Í hverjum mánuði fær hún tæpar fjögur hundruð þúsund krónur greiddar frá Tryggingastofnun og á að nota hann meðal annars í að greiða leigu. Peningurinn hefur áður horfið skömmu eftir mánaðamót til að fjármagna neyslu hennar. Hann vill að Félagsbústaðir geti fengið leiguna beint frá Tryggingastofnun.

„Hún fær bara peningana í hendurnar. Svo á hún að borga. Henni er ekki séð fyrir öruggu húsnæði, henni er ekki séð fyrir mat. Henni er ekki séð fyrir eðlilegum lyfjum heldur fær hún bara peninga í hendurnar og á að sjá um sig eins og allir aðrir,“ segir Jón. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×