Íslenski boltinn

Sýking ógnaði ferli Kristó­fers: „Al­gjört krafta­verk að þetta hafi ekki farið verr“

Aron Guðmundsson skrifar
Kristófer Ingi Kristinsson, leikmaður Breiðabliks, hefur þurft að takast á við alls konar áskoranir á undanförnum mánuðum. Hann sneri aftur inn á knattspyrnuvöllinn gegn KR á dögunum með miklum hvelli.
Kristófer Ingi Kristinsson, leikmaður Breiðabliks, hefur þurft að takast á við alls konar áskoranir á undanförnum mánuðum. Hann sneri aftur inn á knattspyrnuvöllinn gegn KR á dögunum með miklum hvelli. Vísir/Bjarni

Ekki mátti miklu muna að knatt­spyrnu­ferill Kristó­fers Inga Kristins­sonar, leik­manns Breiða­bliks, yrði að engu eftir að hann fékk blóðsýkingu í ökkla í kjölfar að­gerðar. Lífs­reynslan opnaði augu hans og nú er Kristó­fer mættur aftur inn á völlinn og það með miklu látum.

Hinn 26 ára gamli Kristó­fer, sem á að baki feril úti í at­vinnu­mennsku sem og með yngri lands­liðum Ís­lands, var hluti af Ís­lands­meistara­liði Breiða­bliks á síðasta tíma­bili og fljót­lega eftir það var ákveðið að hann færi í að­gerð vegna kvilla í ökkla sem hafði verið að plaga hann.

„Ég hafði verið að glíma við meiðsli á hægri ökkla í þónokkurn tíma og átti að fara í að­gerð fyrir síðasta tíma­bil en þá kom í ljós að það myndi taka lengri tíma að jafna sig á því en við vonuðumst. Ég ákvað því að bíða með það og fara í þá að­gerð eftir síðasta tíma­bil. Ég varð svo fyrir því óláni að meiðast um mitt síðasta tíma­bil en auðvitað endaði það síðan vel, með Ís­lands­meistara­titli. Á vinstri ökkla var svo verið að fjar­lægja bein í hælnum sem hafði verið að trufla mig. En báðar þessar að­gerðir voru frekar litlar sem ég átti í raun bara að vera ein­hverja þrjá til fjóra mánuði að jafna mig á. Planið var að ég myndi verða til­búinn fyrir undir­búningstíma­bilið.“

Klippa: Kristófer Ingi Kristinsson: „Al­gjört krafta­verk að þetta hafi ekki farið verr“

En það varð ekki raunin.

„Það átti sér stað smá bak­slag eftir að­gerðina, reyndar ekki tengt að­gerðinni sjálfri. Í janúar síðastliðnum lenti ég í því að fá blóðsýkingu, fékk í rauninni streptókokka sýkingu í gegnum ökklann. Lá inni á spítala í tæpa viku sökum þess og svo hófst endur­hæfingar ferlið. Ég var í raun bara mjög heppinn með það hvernig það endaði.“

Fólk deyr ef sýkingin nær að dreifa sér nógu mikið

Það að fá blóðsýkingu er ekkert grín en Kristó­fer segir að eftir áhyggja hafi það kannski reynst happ hans að vita ekki hvað slík sýking gæti haft í för með sér.

„Ég var í raun sjálfur ekki meðvitaður um það hvað blóðsýking væri. Ég gæti í raun sagt að ég hafi verið heppinn að vera ekki alveg full­meðvitaður um hversu al­var­legt það getur verið. Á meðan að ég stóð, sér­stak­lega á spítalanum, var ég mjög jákvæður gagn­vart þessu og með það hugar­far að það gæti ekkert komið fyrir mann. Sem betur fer fyrir mig þá var raunin sú að ég fór tíman­lega upp á spítala og sýkla­lyfin náðu að vinna vel úr þessu.

Þarna er um að ræða streptókokka sýkingu sem að í raun étur allt upp, vefi og annað og dreifir sér um líka­mann og getur í raun endað með því að fólk deyr ef sýkingin nær að dreifa sér nógu mikið áður en sýkla­lyf eru gefin. Þá getur fólk misst útlimi og annað á því svæði sem er sýkt. Sem betur fer fór ég tíman­lega upp á spítala og er mjög þakk­látur öllum læknum og þeim sem að spítalanum stóðu varðandi með­ferð mína fyrir skjót viðbrögð.

Þegar að ég mætti upp á spítala var ég búinn að vera veikur í þrjá daga og í raun hugsaði ekkert út í það. Ég mætti í sjúkraþjálfun hjá Sæ­rúnu sjúkraþjálfara sem hugsar um okkur leik­mennina hér hjá Breiða­bliki og hún tók eftir því, því mér var búið að vera illt í ökklanum og gat ekki stigið í hann, að það var byrjuð að myndast svona lína sem hafði verið að teygja sig hærra og hærra og þá var kominn roði í kringum ökklann. Ég var í raun með öll þessi ein­kenni sem fylgja týpískri sýkingu og hún sendir mig upp á spítala sem betur fer. Þangað mætti ég, fékk frábæra þjónustu og mjög skjót viðbrögð frá öllum þarna í kring.

Tekin voru sýni til að at­huga hvað væri í gangi.

„Sýkingin hafði verið komin að liðnum og þegar að hún nær að dreifa sér þar er í raun erfitt að losa sig við hana. Þetta hefur það í för með sér að sýkingin eyði­leggur allt þarna í kring. Hefði sýkingin náð að dreifa sér eitt­hvað meira þar þá hefði ég mjög ólík­lega geta spilað eða verið með á háu gæða­stigi í fót­bolta eða spilað fót­bolta yfir höfuð þar sem að ökklinn hefði verið krónískt skemmdur. Ef sýkingin hefði svo náð að dreifa sér enn lengra þá endar það með því að það hefði þurft að taka löppina af. Það munaði mjög litlu að þetta hefði geta farið í þá átt. Ég veit ekki hver tíma­ramminn er en þetta var í raun búið að dreifa sér það langt að það munaði mjög litlu að maður hefði þurft að hætta í fót­bolta.“

Algjört kraftaverk

Nú þegar að hann er fróðari um ýmis­legt varðandi blóðsýkingar telur Kristó­fer sig afar heppinn mann.

„Auðvitað er maður ungur og kannski minni líkur á því að eitt­hvað gerist varðandi svona blóðsýkingar þegar að fólk er ungt en það er auðvitað bara stór­hættu­legt að lenda í svona og ef það er ekki gripið rétt inn í þá getur fólk bara hrein­lega dáið. Horfandi til baka þá er maður bara virki­lega þakk­látur að nú sé kominn maí mánuður og maður er strax kominn aftur út á fót­bolta­völlinn. Það er í raun bara al­gjört krafta­verk að þetta hafi ekki farið verr en þetta.“

Í gegnum þetta ferli segist Kristó­fer hafa verið óvenju jákvæður.

„Maður áttar sig kannski meira á því þegar að maður lítur til baka hversu erfitt þetta hefði geta verið hefði hugar­farið verið öðru­vísi. En mér finnst ég hafa tæklað þetta á mjög góðan hátt og er þakk­látur öllum þeim sem studdu mig í gegnum þetta ferli. Ég fann fyrir miklum stuðningi frá Breiða­bliki, fjöl­skyldu og vinum. Í raun var hugsunin alltaf á þá leið að allt myndi fara vel. Ef maður nær ein­hvern veginn að detta ekki í þetta neikvæða og hugsa hvað ef þetta eða hitt gerist þá nær maður ein­hvern veginn að halda ágætri and­legri líðan. Ég held að það hafi hjálpað með þetta ferli.

Ég vissi auðvitað ekki hvenær að ég myndi koma til baka í fót­bolta, það er oft erfitt að segja til um það þegar að um svona blóðsýkingar er að ræða. Það er ekki al­gengt að lenda í þessu og bæði læknar og sjúkraþjálfarar gátu í raun ekki sagt mér nákvæm­lega ég myndi snúa til baka á völlinn eða hvað myndi gerast. Þetta snerist um að taka þetta dag frá degi og sjá hvernig ég myndi vera. Sem betur fer var mikill bati og maður ná fullum bata. Það er mikilvægast í þessu.“

Hefur æft eins og brjálæðingur

Hans undir­búningstíma­bil var ólíkt undir­búningstíma­bili annarra leik­manna.

„Eftir að ég greindist með blóðsýkinguna tók við spítala­vist þar sem að ég þurfti að fara á ákveðinn sýkla­lyfs kúr. Maður var orku­laus og mátti í raun ekki gera neitt. Ég gat ekki labbað í ein­hverjar vikur og svo var maður bara að reyna ná orkunni aftur. Byrja náttúru­lega bara á því að mæta aftur á æfinga­svæðið og hitta strákana, ég lyfti mikið á þessum tíma og í æfingar­ferð liðsins núna í mars var ég kominn aftur á fætur, gat byrjað að hlaupa aðeins og hef núna verið á fullu síðustu tvo mánuði. Hef æft eins og brjálæðingur. Auðvitað var þetta allt öðru­vísi undir­búningstíma­bil heldur en flestir eru búnir að upp­lifa en ég hef bara tekið þetta dag frá degi. Er kominn aftur inn á völlinn núna og við tekur að byggja sig upp til þess að geta spilað fleiri mínútur.“

Það var svo á mánu­daginn síðastliðinn sem hann sneri aftur í leik­manna­hóp Breiða­bliks fyrir leik í Bestu deildinni gegn KR.

„Þetta var svolítið fljótt að gerast hjá mér. Ég var búinn að vera æfa með liðinu, taka nokkrar æfingar og við vorum í raun ekki búin að plana nákvæm­lega ég kæmi til baka. Það leit í raun allt vel út og með því fékk ég grænt ljós á að vera með í leik­manna­hópnum og auðvitað var það stór stund fyrir mig eftir öll þessi erfiði að geta verið aftur í hóp.

Kristófer Ingi komst í færin gegn KRVísir / Diego

Vissi að hann myndi skora

Leikurinn var hin mesta skemmtun, frábær aug­lýsing fyrir ís­lenska knatt­spyrnu. Breiða­blik komst tveimur mörkum yfir en leiknum lauk með 3-3 jafn­tefli. Kristó­fer kom inn á þegar að aðeins nokkrar mínútur eftir lifðu leiks, og það af miklum krafti.

„Auðvitað var ömur­legt að missa for­ystuna í leiknum, mjög skemmti­legum leik, en það var kallað í mig þegar að ein­hverjar mínútur voru eftir. Það var svo lítið eftir af leiknum og maður fer ein­hvern veginn ekki í of­hugsun. Maður ætlar bara að mæta, þetta er fót­boltinn sem að maður þekkir og í raun snerist þetta nú­mer eitt, tvö og þrjú um að vera með jákvætt hugar­far. Maður nær að halda haus þrátt fyrir að hafa ekki spilað lengi og auðvitað var frábært að ná að jafna leikinn alveg undir lokin.“

Hann skoraði dramatískt jöfnunar­mark þegar komið var fram í upp­bótartíma venju­legs leiktíma, staðan 3-3 og þannig endaði leikurinn.

„Auðvitað var bara mjög gaman að geta hjálpað liðinu. Ég samt ein­hvern veginn vissi að ég myndi skora í þessum leik og ég var búinn að segja það við alla mína nánustu að ég fyndi það á mér að ég væri að fara skora í þessum leik. Eftir leik fer maður að líta til baka, sjá allt ferlið á bak við þetta. Maður spilar nokkrar mínútur, ætlar sér lengra og nóg eftir af tíma­bilinu en ég hugsaði til baka. Maður verður að vera þakk­látur fyrir það sem að maður hefur og það er eigin­lega fárán­legt hvað maður tekur öllu sem sjálfsögðum hlut. Hvort sem það tengist fót­boltanum eða lífinu sjálfu. Sér­stak­lega ef maður missir af ein­hverju og upp­lifir að vera ekki viss um það hvort maður geti verið í fót­bolta aftur eða haldi heilsu. Þetta opnaðu augu manns og maður er í raun bara fyrst og fremst þakk­látur fyrir að geta verið í fót­bolta. Það er ekki sjálf­sagður hlutur heldur, hvað þá að spila fyrir félag eins og Breiða­blik. Bara mikið þakk­læti fyrir það.“

Kristófer Ingi fagnar marki sínu gegn KR í dögunum. Vísir/Jón Gautur

Hvernig horfir fram­haldið á tíma­bilinu við þér?

„Mér finnst við vera með rosa­lega öflugan hóp, við ætlum okkur klár­lega að reyna að vinna allt sem að við getum unnið, svo erum við með Evrópu­keppni og allt undir. Þetta er rosa­lega spennandi tíma­bil, ég hlakka rosa­lega til að geta komist aftur inn á völlinn og hjálpað liðinu meira. Auðvitað vonast maður til að ná öðrum titli og ná sem lengst sem lið. Rosa­lega spenntur, sér­stak­lega eftir að hafa séð hversu stutt á milli getur verið í þessu.“

Mikilvægt að lifa í núinu

En það er ekki hjá því komist að sjá hversu mikil áhrif þessi lífs­reynsla hefur haft á Kristó­fer þegar að hann segir manni frá síðustu mánuðum í sínu lífi.

„Það er nefni­lega stóra sam­hengið sem er nú­mer eitt, tvö og þrjú í þessu. Fjöl­skyldan og allt sem því tengist, svo er fót­boltinn náttúru­lega. Það er líf eftir fót­boltann en það eru rosa­lega mikil forréttindi að geta verið partur af þessu. Svo, sér­stak­lega verandi í mikilli sam­keppni og öðru, verður fólk von­svikið og maður vill alltaf meira og meira en svo er mikilvægt að njóta stundarinnar þó svo að maður vilji alltaf meira og meira. Það þýðir ekki alltaf að hugsa með sér hvað maður vilji á morgun og hinn, það er rosa­lega hollt og mikilvægt að lifa í núinu og njóta þar sem að maður er.“

Viðtalið við Kristófer í heild sinni má sjá hér ofarlega í fréttinni. Viðtalið í hlaðvarpsformi er svo hægt að finna hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×