Viðskipti innlent

Rann­sak­endur og nem­endur við HA fá að­gang að sér­hæfðu gervi­greindar­tóli

Atli Ísleifsson skrifar
Með samningnum fær allt starfsfólk og stúdentar Háskólans aðgang að tólinu sem sagt er eitt öflugasta rannsóknar- og tilvísunartól nútímans sem nýti gervigreind til að greina heimildir, draga fram samhengi og auka gagnsæi í vísindastarfi.
Með samningnum fær allt starfsfólk og stúdentar Háskólans aðgang að tólinu sem sagt er eitt öflugasta rannsóknar- og tilvísunartól nútímans sem nýti gervigreind til að greina heimildir, draga fram samhengi og auka gagnsæi í vísindastarfi. Vísir/Viktor Freyr

Háskólinn á Akureyri hefur gert tveggja ára samning um aðgang að Scite sem mun veita rannsakendum og nemendum við skólann aðgang að rannsóknartóli með innbyggðum stuðningi við fræðslu og gervigreind.

Í tilkynningu segir að Scite sé eitt öflugasta rannsóknar- og tilvísunartól nútímans sem nýti gervigreind til að greina heimildir, draga fram samhengi og auka gagnsæi í vísindastarfi.

„Með samningnum fær allt starfsfólk og stúdentar Háskólans fullan aðgang að Scite sem hluta af Enterprise-leyfi skólans.

Scite býður upp á svokallaðar snjallar tilvísanir (smart citations), aðgengi að öflugum gagnagrunnum og greiningartólum sem styðja bæði við rannsóknavinnu og gagnrýna hugsun í kennslu og fræðastarfi. Samhliða innleiðingu mun Scite veita markvissan stuðning með námskeiðum, fræðslu og sérsniðnu leiðbeinandanámskeiði (train the trainer) og fagnámskeiði (masterclass) fyrir starfsfólk á fræðasviðum.

Í kerfinu er jafnframt að finna snjalla aðstoðarþjónustu sem byggir á tengingu við OpenAI og Anthropic (Claude). Með þessari samþættingu er hægt að spyrja spurninga og fá svör sem byggja eingöngu á ritrýndum og skrásettum heimildum. Þetta eykur bæði nákvæmni og áræðanleika úttaksins, og dregur verulega úr hættu á villandi eða tilbúnum niðurstöðum (hallucination), sem getur fylgt notkun almennra stórra mállíkana.

Verkefnið er leitt í samstarfi Bókasafns Háskólans og Kennslu- og upplýsingatæknimiðstöðvar Háskólans á Akureyri í samvinnu við verkefnastjóra gervigreindar. Til að tryggja ábyrga og upplýsta notkun Scite, munu allir notendur þurfa að taka stutt netnámskeið í gegnum kennslukerfi skólans áður en aðgangur verður veittur.

Með því að gera Scite aðgengilegt fyrir öll innan Háskólans á Akureyri skapast ekki aðeins aðstaða til að efla rannsóknir og gagnrýna hugsun, heldur einnig raunverulegt tækifæri til að þróa og aðlaga nám og kennslu að þeim veruleika sem ör þróun gervigreindar skapar. Við hvetjum alla kennara, stúdenat og fræðafólk til að nýta sér þetta öfluga tól og taka virkan þátt í mótun framsækins og siðferðilega ábyrgðs háskólasamfélags,“ segir í tilkynningunni frá skólanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×