Innlent

Þjófar réðust á starfs­mann verslunar

Samúel Karl Ólason skrifar
Alls eru 69 mál skráð í kerfi lögreglu frá klukkan fimm í gær til fimm í morgun.
Alls eru 69 mál skráð í kerfi lögreglu frá klukkan fimm í gær til fimm í morgun. Vísir/Vilhelm

Lögreglunni barst í gærkvöldi tilkynning um fjóra aðila sem voru að stela í matvöruverslun í miðbænum. Þegar starfsmaður reyndi að stöðva þá réðust þjófarnir á hann. Þegar lögregluþjóna bar að garði voru þjófarnir farnir og fundust þeir ekki, samkvæmt dagbók lögreglu.

Þá fóru erlendir ferðamenn á lögreglustöðina í miðbænum og tilkynntu að þeir hefðu orðið fórnarlömb vasaþjófnaðar.

Tilkynning barst einnig um húsbrot og líkamsárás í heimahúsi á höfuðborgarsvæði en gerandinn var farinn af vettvangi þegar lögregluþjóna bar að garði. Í öðru sambærilegu atviki, þar sem tilkynning barst um líkamsárás í heimahúsi, var einn handtekinn og vistaður í fangaklefa.

Þá virðist sem nokkuð hafi verið um stúta í umferðinni í nótt sem voru undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna en einn slíkur velti bíl sínum. Í öðru atviki skullu tveir bílar saman. Fimm voru í bílunum en þeir munu ekki hafa slasast.

Þrír gistu í fangageymslu lögreglunnar í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×