Viðskipti innlent

Bjarni nýr fram­kvæmda­stjóri RVK Bruggfélags

Lovísa Arnardóttir skrifar
Bjarni kemur til félagsins frá Heimkaupum.
Bjarni kemur til félagsins frá Heimkaupum. Aðsend

Bjarni Þór Logason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags. Bjarni kemur þaðan frá Heimkaupum þar sem hann var innkaupastjóri. Bjarni kom einnig að opnun verslunar Prís í Kópavogi. Áður starfaði hann sem rekstrarstjóri hjá Ölgerðinni, RJC og Líflandi.

„Ég hef lengi verið aðdáandi bjóranna frá RVK Bruggfélagi og þekki því vel til félagsins, sem hefur verið þekkt fyrir að vera framsækið í vöruþróun. Þá er Tónabíó einstakur staður, þar sem gæði, stemning og metnaður mætast á einstakan hátt. Það eru mörg spennandi verkefni fram undan sem ég hlakka til að byrja á. Við erum stórhuga hér innanhúss, þannig að bjórunnendur eiga von á góðu á komandi misserum,“ segir Bjarni í tilkynningu.

Þar kemur einnig fram að Bjarni hefur lokið BS-prófi í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun og rekstur auk þess að hafa lagt stund á nám í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Bruggfélagið er nú bæði í Skipholti og Tónabíó. Aðsend

Í tilkynningu segir að ráðningin marki tímamót í starfsemi félagsins sem stefni á mikla sókn. Nýverið hafi þau bætt við fjórum nýjum kjarnabjórum við vöruúrvalið. Dósirnar bjóranna voru voru hannaðar af Karlsson Wilker í New York en hann hlaut gullverðlaun FÍT fyrir hönnun.

„Verslun með bjór stendur á tímamótum, þar sem tilkoma netverslana og bein sala frá framleiðendum hefur skapað nýja sölumöguleika auk þess sem kröfur um aukið frelsi og afnám einkasölu hins opinbera verða stöðugt háværari. Bjarni kemur til okkar með víðtæka þekkingu og reynslu af úr íslensku viðskiptalífi sem mun sannlega styrkja okkur í þessari þróun,“ segir Einar Örn Sigurdórsson stjórnarformaður RVK Bruggfélags.

RVK Bruggfélag var stofnað á bjórdaginn 2017 og hefur síðan þá gert yfir 200 tegundir bjóra. RVK Bruggfélag starfrækir í dag tvö brugghús í Skipholti en opnaði í fyrra stað í Tónabíós.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×