

Bakþankar

Daníel og Rut
Lúmskasta röksemdin í umræðum um misrétti kynjanna er sú að það fyrirfinnist ekki. Því til stuðnings er gjarnan vísað til frelsis einstaklingsins, allt sé undir honum sjálfum komið alveg óháð kyni.

Sjálfsmyndin í hestöflunum
Börn eru undarleg fyrirbæri. Stundum hefur hvarflað að mér að fegurð þeirra og töfrar komi og fari með barnatönnunum. Áður en í þær glittir heilla þau fáa aðra en nánustu ættingja. Þegar síðasta barnatönnin dettur úr eru börnin yfirleitt orðnir unglingar, sem er allt annað og leiðinlegra fyrirbrigði en börn.

Fjallkarl handa Fjallkonunni
17. júní þegar ég var að alast upp sló út skrúðgöngurnar bæði fyrsta maí og á sjómannadaginn og dró að sér svo mikinn mannfjölda niður í miðbæ að þar voru saman komin fleiri andlit en maður hafði áður séð. Og skemmtiatriðin Þjóðsöngskórinn og dansleikur á malbiki á eftir voru stórkostir menningarviðburðir sem hafa geymst í glöpóttu minninu allt fram á þennan dag.

Biljónsdagbók 17.6.2007
Þegar Öxar við ána reif í sundur morgunkyrrðina við East Meadow Manor í Surrey, og Dow Jones stóð í 13.424,39 þegar ég tipplaði út á grasbalann og dró íslenska fánann að húni. Mér finnst það partur af samfélagslegri ábyrgð að halda upp á daginn. Ég er nú einu sinni frá þessari eyju þó að ég sé auðvitað orðinn 83% glóball.

Bókaraþjóð
Þau undur og stórmerki hafa orðið á Íslandi að háskólar í landinu eru farnir að keppast um nemendur og auglýsa nú grimmt á hverju ári eftir umsóknum þar sem því er haldið fram að viðkomandi skóli sé bestur út frá einhverjum sjónarmiðum og að þar sé gott að læra í góðu akademísku umhverfi og svo framvegis.

Íslandbaídsjan
Í þjóðfélagsumræðunni er oftar en ekki talað um „þær þjóðir sem Íslendingar vilja bera sig saman við". Hingað til hef ég ekki heyrt minnst á Aserbaídsjan í þeim flokki en upp á síðkastið hefur þó komið í ljós að Íslendingar eiga ýmislegt sameiginlegt með Aserum.

Áhugamál
Hæfileikinn til að eiga sér áhugamál er eitt það skemmtilegasta sem aðskilur okkur frá hinum dýrategundunum. Aðrir ofur eiginleikar, eins og að vita að einn daginn hrökkvum við upp af, hafa bara skilað okkur bömmerum. Því eru áhugamálin einn besti kostur okkar grimmu tegundar og kæmi til refsilækkunar ef við lentum fyrir tegundadómstóli.

Kynjasögur Egils
Það hljóp á snærið hjá blöðunum í síðustu viku þegar skarst í odda á milli Egils Helgasonar og Ara Edwald. Ekki sáu þau ástæðu til að fá hlutlausan lögfræðing til að rýna í tölvupóstsamskipti þeirra - svona rétt til að fræða almenning á því hvað stenst lög - heldur létu þá um að skattyrðast. Egill brá sér síðan í helgarviðtal til Kolbrúnar Bergþórsdóttur á Blaðinu þar sem hann útlistar það sem bíður hans á Ríkissjónvarpinu.

Heima og heiman
Hótel eru undarlegir staðir. Á margan hátt líkjast hótel hugmyndum flestra trúaðra um staðinn sem tekur við eftir að jarðlífinu lýkur. Þá verða engar íþyngjandi skyldur. Enginn þarf að búa um rúmið sitt og ósýnilegar hendur munu alltaf sjá til þess að allt verði hreint og fagurt í kringum mann. Að minnsta kosti ef maður hefur verið góður og lagt fyrir áður en lagt er í langferðina.

Sigling við sólarlag
Hér áður fyrr dóu flestir á miðjum aldri með smalaprikið eða skörunginn í hendi án þess að hið opinbera þyrfti að hafa af þeim áhyggjur. Einstöku kerlingar voru þó lífseigar og voru kallaðar “ömmur”.

Bölvuð ekkisens...
Mér finnst ótrúlega sorglegt að sjá gengið út frá því sem vísu að hæfileikinn til að læra eigi að eldast af manni, að það að vera enn að þroskast og auka við þekkingu sína sé merki um vanþroska. Auðvitað ætti þessu að vera öfugt farið. Fátt ber einmitt gleggri merki um vanþroska en að geta ekki lært, þroskast og breyst, að bíta í sig skoðanir og viðhorf sem maður er ófáanlegur ofan af hvað sem tautar og raular.

Póstkort
Að aldagömlum sið ákvað ég fyrir nokkrum dögum að bregða mér suður á bóginn og freista þess að njóta lífsins í þægilegu loftslagi, frír og frjáls í lögbundnu sumarfríi. Þegar þetta er skrifað er ég kominn með 15 moskitóbit og hverju þeirra hef ég að sjálfsögðu tekið fagnandi enda ekki á hverjum degi sem maður getur gengið um á bol og stuttbuxum utandyra og sjálfsagt að einhver greiðsla, eða fórn, komi í staðinn.

Hugmyndir Svía um nútímann
Það er viss passi í kringum hina árlegu fegurðarsamkeppni Ungfrú Ísland að henni sé mótmælt, einkum af ljótu og bitru femínistunum sem enginn vildi sofa hjá. Alltaf eru aðstandendur keppninnar jafn gáttaðir á gagnrýninni, enda frjálst val ungu stúlknanna með vaselínsmurðu skelfingarbrosin að taka þátt í viðkomandi skrokkasýningu. Sem er alveg rétt. Ekki fá þær pening fyrir. Í mesta lagi þrjátíu kíló af nælonsokkum, ef þær eru nógu vinsælar.

Hálfvitar
Þegar allt kemur til alls og kjarninn hefur verið skilinn frá hisminu blasir við einföld skýring á flest öllum vandræðum heimsins: Það er of mikið til af hálfvitum.

Sértæk fræði
Frá því einu sérfræðingarnir voru latínuþyljandi prestar og feitir sýslumenn eru nú bara stöku strá sem ekki flokkast undir sérfræðinga á einhverju sviði.

Velgjörðarmenn fátækra stúlkna
Um súludans og vændi virðist oft ekki mega tala um án þess að sjálfskipaðir verndarar frelsis stígi fram. Þeir vilja vernda þessar atvinnugreinar og hafa jafnan bent á, máli sínu til stuðnings, að vændi sé til að mynda ein elsta atvinnugrein heims.

Hver á að blása?
Sunnudagsmorgunn í Kaupmannahöfn. Klukkan er hálfellefu og í Københavns Dommervagt stendur sléttfeitur maður frammi fyrir rétti. Hann er 29 ára gamall. Þessa stundina er hann frægasti maður í Danaveldi. Samt veit enginn hvað hann heitir.

Biljónsdagbók 3.6. 2007
OMXI15 var 8.178,27 í morgun, þegar ég bað Halla að ganga frá yfirtökutilboði í Reyktjaldagerðina, og S&P500 var 1.503,23 þegar Iwaunt Moore hringdi frá London og sagði að ég yrði að koma strax út til að róa útlendu fjárfestana í Asian Viking Ventures.

Lög um reyk
Í gær tóku í gildi ný lög á skemmtistöðum og börum borgarinnar sem banna gestum að reykja tóbak þar innandyra. Þeir sem hafa hatast við reykinn um langt árabil fagna þessum lögum og gera sér jafnvel vonir um að þetta skref verði byrjunin á endalokum tóbaksreykinga yfir höfuð, enda eru þær jú vissulega heilsuspillandi fyrir þá sem þær stunda sem og nærstadda.

Reyklaus barlómur
Allir vita að reykingafólk er frekasti minnihlutahópur í heimi. Í eigin huga er reykingamaðurinn þó fyrst og fremst kúgað fórnarlamb, eins og umræðan um reykingabannið sem tekur gildi í dag sýnir. Svo innilega trúir reykingamaðurinn tjörunni að hann hefur fengið til liðs við sig ófáa nytsama sak/reykleysingja, sem oft eru uppnefndir „frjálslyndir húmanistar“ og eru vinsælir álitsgjafar og pistlahöfundar.

Sólgleraugu fyrir sálina
Á morgun verður bannað að reykja á öllum veitingastöðum landsins, jafnt á Hótel Holti sem á Rökkurbarnum. Bretar eru farnir að merkja áfengisflöskur með miðum frá hinu opinbera. Þar kemur fram hversu stórra skammta af viðkomandi áfengistegund ríkið telur ásættanlegt að neyta á dag. Þessar merkingar koma örugglega hingað fljótlega.

Rétta andlitið
Fyrir alþingiskosningarnar virtist sem stjórnmálamönnum þætti öruggt að atkvæðin skiluðu sér ef börnum væntanlegra kjósenda væri boðið upp á andlitsmálningu. Að minnsta kosti sá ég ekki betur en að þetta föndur væri auglýst á næstum hverri einustu fjölskylduskemmtun sem flokkarnir buðu upp á í kosningabaráttunni.

Góðir grannar
Sums staðar er samkennd nágranna mikil og félagslíf og dagleg samskipti þeirra á milli í miklum blóma. Annars staðar veit fólk varla af nágrönnum sínum og vill hafa það þannig. Svo getur þetta breyst. Núna virðist mér til dæmis að samvitund og samstaða íbúa við Njálsgötuna á milli Barónsstígs og Snorrabrautar sé talsvert meiri en hún var árin sem ég bjó á efstu hæðinni á Njálsgötu 74, húsi sem fyrirhugað er að gera að athvarfi fyrir heimilislausa.

25 ríkustu
Samkvæmt úttekt vikublaðsins Sirkuss í gær eiga 25 ríkustu Íslendingarnir einhverja eitt þúsund og þrjú hundruð milljarða í alls konar verðbréfum, eignarhlutum, reiðufé og guð má vita hvað út um allar jarðir og ekkert nema gott um það að segja.

Glerbrot í vegginn, takk
Þegar fjölskylda mín var búsett um tíma á Spáni bjuggum við í sex hæða húsi með flötu þaki þar sem var hægt að hengja upp blautan þvott og liggja í sólbaði. Í húsinu fast við okkar var staðsett nunnuklaustur.

Hverfulleikinn á biðstofunni
Á læknabiðstofum kemur yfir mann nagandi tilfinningin um fallvaltleika lífsins. Ekki það að maður eigi endilega von á slæmum tíðindum hjá lækninum heldur eru það gömlu glansblöðin sem þarna liggja í hrúgum sem minna á þá einföldu staðareynd að það sem skiptir öllu máli í dag skiptir engu máli á morgun.

Á ég að gæta systur minnar?
Systir mín hefur staðið í ströngu í samskiptum sínum við Tryggingastofnun undanfarin misseri. Fyrir aldarfjórðungi þurfti að fjarlægja skjaldkirtil hennar en fyrir mistök voru kalkkirtlarnir teknir líka. Eftir það er ekki nóg að drekka tvö mjólkurglös á dag.

Eru mathákar verri en barnaníðingar?
Mikið þóttu mér fyndin heitin sem fjölmiðlafólk fann upp á þegar það fjallaði um manninn sem stundaði að borða á veitingastöðum án þess að borga. Raðsælkeri og raðafæta voru meðal þeirra orða sem voru notuð til að lýsa brotamanninum og hefur flestum líklega verið hlátur í hug þegar þeir lásu fréttirnar.

Stjórn heilbrigðrar skynsemi
Nýja ríkisstjórn Frakklands skipa 15 ráðherrar. Frakkar eru um 64 milljónir talsins þannig að kostnaður við hvert ráðuneyti er borinn upp af rúmlega 4 milljónum landsmanna. Í síðustu ríkisstjórn Íslands sátu 12 ráðherrar.

Biljónsdagbók 20.5
OMXI15 var 7.981,15 á fimmtudagsmorgun, þegar ég pantaði fjórar heilsíður í blöðunum, og Dow Jones stóð í 13.468,03 þegar Geir og Imba Sól opinberuðu leynilega trúlofun sína og ég varð að afpanta þessar auglýsingar.