Ameríski draumurinn sem drukknaði í Río Grande Mynd af feðginum frá El Salvador sem drukknuðu við að reyna að komast til Bandaríkjanna hefur vakið athygli á hættunni sem fólk frá Rómönsku Ameríku leggur sig í við leit að betra lífi. Erlent 26. júní 2019 11:45
Mueller samþykkir að bera vitni fyrir þingnefnd Formenn tveggja nefnda fulltrúadeildar Bandaríkjaþings stefndu fyrrverandi sérstaka rannsakandandum til að bera vitni um rannsókn hans og niðurstöður um afskipti Rússa af forsetakosningunum árið 2016 og mögulega glæpi Trump forseta. Erlent 26. júní 2019 07:37
Trump segir að öllum árásum verði svarað af fullum krafti Forseti Írans segir Bandaríkjaforseta stríða við þroskahömlun eftir tilkynningu um nýjar þvinganir. Sá bandaríski segir yfirlýsinguna móðgandi og segir að hverri árás á bandarískt skotmark verði svarað af fullum krafti, í sumum tilfellum af gjöreyðingarmætti. Erlent 26. júní 2019 07:30
Forstjóri tolla- og landamæraeftirlits Bandaríkjanna segir af sér eftir gagnrýni vegna aðbúnaðar flóttabarna John Sanders, starfandi forstjóri tolla og landamæraeftirlits Bandaríkjanna hefur ákveðið að segja stöðu sinni lausri í kjölfar fréttaflutnings vestra um aðbúnað barna innflytjenda sem eru í haldi stofnunarinnar í Texas. Fréttir höfðu borist af því að sum börnin hafi verið látin dúsa í stöðinni í fleiri vikur og við illan aðbúnað. Aðstæður í innflytjendaskýlum sætir harðri gagnrýni réttindasamtaka og stjórnarandstæðinga. Erlent 25. júní 2019 21:50
Grisham skipuð fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins Stephanie Grisham hefur verið skipuð nýr fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins og tekur hún við starfinu af Söruh Huckabee Sanders sem sagði af sér í mars síðastliðinn. Erlent 25. júní 2019 17:43
Íranir segja Hvíta húsið „andlega fatlað“ vegna refsiaðgerðanna Forseti Írans segir Bandaríkjastjórn loka varanlega á viðræður með því að beita utanríkisráðherrann persónulega refsiaðgerðum. Erlent 25. júní 2019 10:49
Bandaríkjaforseti segir konuna sem sakar hann um nauðgun ekki hans „týpu“ Aftur ver forseti Bandaríkjanna sig fyrir ásökunum um kynferðislegt ofbeldi með því að gera lítið úr ásakandanum. Erlent 25. júní 2019 08:02
Ætla að beita Íran enn fleiri viðskiptaþvingunum Bandaríkjastjórn hyggst beita Íran enn harðari viðskiptaþvingunum komi þarlend stjórnvöld ekki að samningaborðinu. Erlent 23. júní 2019 23:45
Trump nefndi vopnakaup Sáda þegar hann var spurður um rannsókn á Khashoggi Trump ræddi málið í viðtali við NBC sjónvarpstöðina fyrr í dag og benti í því samhengi á mikil vopnaviðskipti Bandaríkjanna og Sádí-Arabíu. Kaup Sáda á bandarískum vopnum nemi háum fjárhæðum sem búi til störf í heimalandinu. Erlent 23. júní 2019 17:02
Hvíta húsið neitar að staðfesta "frábær“ bréfaskipti við Kim Jong-Un Ríkisfréttastofan KCNA í Norður-Kóreu greinir frá því í dag að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi sent Kim Jong-Un leiðtoga Norður-Kóreu fádæma bréf. Í fréttinni um bréfið er vitnað í leiðtogann sem segir bréfið frábært og að hann muni gaumgæfa innihald þess alvarlega. Erlent 23. júní 2019 10:34
Gerðu tölvuárás á vopnakerfi íranska hersins Bandaríkin gerðu tölvuárás á vopnakerfi Íran á fimmtudaginn í síðustu viku eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hætti við loftárásir á landið á síðustu stundu. Tölvuárásin lamaði tölvukerfi sem stýra eldflaugavarnakerfi Írans. Erlent 23. júní 2019 07:23
Trump frestar brottvísunum og gefur tveggja vikna frest til að leysa vandann Bandaríkjaforseti Donald Trump hefur ákveðið að fresta brottrekstrarátaki sem hann hugðist koma af stað með það að markmiði að fækka ólöglegum innflytjendum innan landamæra Bandaríkjanna. Erlent 22. júní 2019 23:50
Trump kveðst ekkert kannast við pistlahöfundinn sem sakar hann um nauðgun Bandaríkjaforseti, Donald Trump, kveðst ekkert kannast við pistlahöfundinn E. Jean Carroll sem sakaði forsetann í gær um nauðgun á tíunda áratug síðustu aldar. Erlent 22. júní 2019 19:17
Trump varar Íran við gjöreyðingu ef til stríðs kemur Spenna milli ríkjanna hefur farið stigvaxandi undanfarið. Erlent 22. júní 2019 13:27
Pistlahöfundur sakar Trump um nauðgun Trump þvertekur fyrir ásakanirnar en fjölmargar konur hafa hingað til sakað hann um kynferðislega áreitni eða ofbeldi. Erlent 21. júní 2019 23:21
NATO sagt stefna að því að viðurkenna geimhernað Með þessu er talið að NATO vilji sannfæra Trump um mikilvægi bandalagsins. Erlent 21. júní 2019 17:10
Segja Trump hafa samþykkt loftárásir á Íran en snúist hugur Árásin átti að vera á fáein skotmörk, ratsjárstöðvar og eldflaugaskotpalla. Erlent 21. júní 2019 07:45
Vill hleypa glæðum í viðræður um kjarnorkuafvopnun á ný Á leiðtogafundi Kim Jong-un og Xi Jinping ræddu þeir meðal annars um stöðuna í viðræðum um kjarnorkuafvopnun. Erlent 20. júní 2019 16:19
Rannsókn á Deutsche Bank teygir anga sína til Trump Bandarísk yfirvöld hafa tekið til skoðunar hvort þýski fjármálarisinn hafi framfylgt lögum sem ætlað er að koma í veg fyrir peningaþvætti og annað glæpsamlegt athæfi. Viðskipti erlent 20. júní 2019 11:07
Sársaukafull fortíð ástæða þess að varnarmálaráðherraefni Trump hættir við Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í dag að Patrick Shanahan, starfandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, muni ekki verða skipaður ráðherra til frambúðar. Í gær birtu bandarískir fjölmiðlar upplýsingar um ofbeldisfullar heimiliserjur úr fortíð Shanahan. Erlent 18. júní 2019 22:00
Hellti sér yfir „hamfaraborgarstjórann“ eftir morðhrinuna í London Þetta er ekki í fyrsta skipti sem forsetinn hellir sér yfir Sadiq Khan borgarstjóra London en þeir hafa lengi eldað grátt silfur saman. Erlent 15. júní 2019 23:15
Dómsigur fyrir bann Trump við transfólki í hernum Umdæmisdómstóll sem felldi bannið úr gildi þarf að taka málið aftur upp og taka frekara tillit til sjónarmiða hersins. Erlent 14. júní 2019 18:13
Huckabee Sanders yfirgefur Hvíta húsið Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti um brotthvarf blaðafulltrúa Hvíta hússins í tísti í kvöld. Erlent 13. júní 2019 20:45
Mæla með að ráðgjafa Trump verði vikið úr embætti Kellyanne Conway, ráðgjafi Trump forseta, er talin síbrotamanneskja á lögum sem banna opinberum starfsmönnum að nýta embætti sín í pólitísku skyni. Erlent 13. júní 2019 17:37
Tilbúinn að taka við upplýsingum um mótframbjóðanda þó þær komi frá erlendum ríkisstjórnum Donald Trump telur upplýsingar frá erlendum ríkisstjórnum um mótframbjóðendur sína ekki endilega vera óeðlileg afskipti af kosningum. Erlent 13. júní 2019 11:26
Rannsókn á Rússarannsókninni beinist að leyniþjónustunni Dómsmálaráðuneyti Trump vill ræða við útsendara CIA sem unnu að greiningu á herferð Rússa til að hafa áhrif á forsetakosningarnar árið 2016. Erlent 12. júní 2019 23:42
Telja tvo ráðherra Trump sýna þinginu lítilsvirðingu Dómsmála- og viðskiptaráðherrar ríkisstjórnar Trump hunsuðu stefnur um gögn sem varða manntal sem fer fram í Bandaríkjunum á næsta ári. Erlent 12. júní 2019 21:13
Trump danglaði blaði með meintum leyniákvæðum framan í fréttamenn Ekkert liggur frekar fyrir um hver ákvæðin eru. Mexíkósk stjórnvöld hafa neitað því að fleira sé í samkomulagi þeirra við Trump en gefið hefur verið upp. Erlent 11. júní 2019 20:44
Staðfestir að Íran hafi aukið framleiðslu á auðguðu úrani Stjórnvöld í Íran hafa aukið við framleiðslu landsins á auðguðu úrani, þetta staðfestir Yukyia Amano, yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar.(IAEA) Erlent 10. júní 2019 23:45
Trump tók sér hlé frá golfi til að hitta hóp barna Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tók sér hlé frá því að spila golf til að heilsa upp á skólabörn sem voru á vellinum. Erlent 8. júní 2019 15:41
Tjáði sig um ofbeldi sonarins fyrir andlátið: „Ætla aldrei að leyfa honum að koma nálægt mér aftur“ Innlent