Sagðir hafa rætt um að drepa sósíalistaleiðtoga Tveir karlmenn sem eru í haldi lögreglu vegna gruns um að þeir hafi unnið að skipulagningu hryðjuverka ræddu um að drepa Gunnar Smára Egilsson, formann Sósíalistaflokksins, og Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar. Þau voru bæði kölluð í skýrslutöku vegna rannsóknar málsins. Innlent 10. október 2022 12:47
Hinir grunuðu og konan þekktust Tveir karlmenn á fimmtugsaldri eru í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um manndráp. Hin látna er kona á sextugsaldri og hefur samkvæmt heimildum fréttastofu tengsl við mennina sem eru á fimmtugsaldri. Innlent 10. október 2022 12:18
Komu í veg fyrir tjón á Djúpavogi Lögreglan á Austurlandi og björgunarsveitir fóru í útkall á Djúpavogi í gær þar sem stefndi í skemmdir á íbúðarhúsnæði sökum foks. Málið var afgreitt hratt og vel og náðist að koma í veg fyrir tjón. Innlent 10. október 2022 09:59
Gekk berserksgang og reyndi að kveikja í íbúð annars manns Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók mann sem hafði valdið töluverðu tjóni í íbúð annars manns og kastað til og skemmt innanstokksmuni. Innlent 10. október 2022 06:13
Tveir karlar grunaðir um að hafa orðið konu á sextugsaldri að bana Tveir karlar á fimmtugsaldri eru í haldi lögreglu vegna gruns um manndráp í Laugardalnum í Reykjavík. Hin látna er kona á sextugsaldri. Innlent 9. október 2022 21:50
Handtekinn fyrir framan fimmtán ára son sinn: „Þetta var ekki rétt“ Leigusali karlmanns sem var handtekinn fyrir að skjóta hest með boga var handtekinn fyrir framan fimmtán ára son sinn í aðgerðum sérsveitarinnar á aðfararnótt laugardags. Feðgarnir gagnrýna vinnubrögð lögreglu en þeir þurftu báðir að dvelja á lögreglustöðinni á Selfossi langt fram á nótt. Innlent 9. október 2022 20:55
Telst ekki eðlilegt í dag að beðið var í margar vikur með skýrslutökur í Óshlíðarmálinu Réttarlæknir hefur skilað skýrslu um niðurstöður krufningar á líki manns sem fórst í bílveltu í Óshlíð árið 1973. Jarðneskar leifar hans voru grafnar upp af lögreglu í maímánuði eftir að ósk um endurupptöku barst frá fjölskyldu hans. Innlent 9. október 2022 14:20
Líkfundur á Gróttu Lík fannst í fjörunni við Gróttu á Seltjarnarnesi á ellefta tímanum í dag. Vakthafandi lögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Gangandi vegfarendur sem komu auga á líkið höfðu samband við lögreglu. Innlent 9. október 2022 12:03
Afþakkaði aðstoð lögreglu eftir líkamsárás Maður sem ráðist var á í miðborg Reykjavíkur laust fyrir klukkan eitt í nótt afþakkaði aðstoð lögreglu og sjúkraliðs. Líkamsárásin var talin minniháttar af lögreglu. Innlent 9. október 2022 07:13
Vaknaði við innbrotsþjófa sem hlupu á brott Íbúi í Hafnarfirði vaknaði við innbrotsþjófa í morgun en þeir höfðu farið inn um ólæstar dyr á húsi hans. Íbúinn kallaði að þjófunum tveimur sem hlupu út og skildu eftir hluti sem þeir eru taldir hafa ætlað að stela úr íbúðinni. Mennirnir voru á bak og burt þegar lögregla kom á vettvang. Innlent 8. október 2022 17:20
Róleg nótt að baki hjá lögreglunni Nóttin var róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu ef marka má dagbók hennar í morgun. Þegar dagbókarfærslan barst klukkan fimm höfðu aðeins þrjátíu og þrjú mál verið skráð frá miðnætti en níutíu í heildina frá klukkan fimm síðdegis í gær. Innlent 8. október 2022 07:12
Eiginkona mannsins sem stunginn var til bana laus úr haldi Einn sakborninga í máli manns sem var stunginn til bana á Ólafsfirði á mánudag var sleppt úr haldi lögreglu í dag. Innlent 7. október 2022 18:37
Tilkynntu tölvuleikjaspilara til lögreglu Í gær barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um öskur og læti frá íbúð í Kópavogi. Lögregla mætti á vettvang en í ljós kom að öskrin komu frá manni sem var að spila tölvuleiki. Hann lofaði lögreglu að róa sig niður. Innlent 7. október 2022 06:24
Húsráðandi á vettvangi manndrápsins látinn laus Kona, ein þeirra þriggja sem handtekin voru grunuð um aðild að manndrápi á Ólafsfirði aðfaranótt sunnudags, er laus úr haldi. Konan var húsráðandi á heimilinu þar sem karlmaður fannst látinn af völdum stungusára. Réttarkrufning hefur farið fram á hinum látna. Nokkurra vikna bið gæti verið eftir niðurstöðum. Innlent 6. október 2022 16:47
Fallist á kröfu um einangrun yfir hinum manninum líka Héraðsdómur Reykjavíkur féllst nú síðdegis á kröfu héraðssaksóknara um tveggja vikna áframhaldandi einangrun í tilfelli karlmanns á þrítugsaldri sem lögreglu grunar um skipulagningu hryðjuverkaárásar. Héraðssaksóknari segir rannsókn miða ágætlega. Innlent 6. október 2022 15:55
Fallist á kröfu um áframhaldandi einangrun Karlmaður á þrítugsaldri sem lögreglu grunar um að hafa haft í hyggju að undirbúa hryðjuverk hér á landi var á tólfta tímanum úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald og einangrun til tveggja vikna. Innlent 6. október 2022 12:04
Óska eftir vitnum að umferðarslysi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á í gærmorgun. Ökumönnum ber ekki saman um stöðu umferðarljósa er slysið varð. Innlent 6. október 2022 10:31
Vildi fá greitt fyrir óumbeðna heimsókn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna manns sem var að sparka í rúður og hurðir í miðborg Reykjavíkur. Í dagbók lögreglu, þar sem fjallað er um verkefni lögreglu í gærkvöldi og í nótt, segir að hann hafi verið handtekinn fyrir eignarspjöll og vistaður í fangageymslu lögreglu. Innlent 6. október 2022 06:14
Ákærður vegna skotárásarinnar við Miðvang Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps vegna skotárásar við Miðvang í Hafnarfirði í lok júní. Tveir brotaþolar í málinu krefjast átta milljóna króna í miskabætur. Innlent 5. október 2022 21:25
Krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir mönnunum tveimur Farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem eru í varðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á meintri skipulagningu hryðjuverka. Innlent 5. október 2022 11:55
Fjórtán ára flúði lögreglu á ofsahraða á Holtavörðuheiði Fjórtán ára unglingur er grunaður um að hafa ekið á ofsahraða yfir Holtavörðuheiði á föstudag. Málið var tilkynnt til barnaverndar. Innlent 5. október 2022 10:16
Lá á dyrabjöllunum í vitlausu húsi Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og í nótt og var meðal annars kölluð út vegna tveggja manna á hóteli í miðborg Reykjavíkur sem neitaðu að yfirgefa hótelið. Lögreglan fylgdi þeim út eftir að hún mætti á vettvang. Innlent 5. október 2022 06:54
Húsráðendur könnuðust ekkert við bíllyklana Íbúar í Garðabæ hringdu á lögreglu fyrr í kvöld vegna bíllykla sem látnir höfðu verið inn um bréfalúgu á húsi þeirra. Innlent 4. október 2022 22:28
Einn sakborninganna hlaut dóm fyrir líkamsárás fyrir tveimur árum Karlmaðurinn sem er í gæsluvarðhaldi og með stöðu sakbornings vegna manndráps á Ólafsfirði í gær var dæmdur í eins árs fangelsi, meðal annars fyrir tvær líkamsárásir, árið 2020. Sá látni hlaut fangelsisdóm fyrir stunguárás fyrir hátt í tuttugu árum. Innlent 4. október 2022 18:29
Stormasamt samband litað af neyslu fíkniefna Kona á fertugsaldri er meðal þriggja sem sæta gæsluvarðhaldi grunuð um aðild að manndrápi á Ólafsfirði aðfaranótt mánudags. Hinn látni, karlmaður á fimmtugsaldri, er eiginmaður konunnar. Samkvæmt heimildum fréttastofu höfðu þau átt í stormasömu sambandi. Innlent 4. október 2022 14:53
Alvarlegt bílslys á Suðurlandsbraut Alvarlegt bílslys varð á gatnamótum Suðurlandsbrautar og Reykjavegar ofan við Laugardalinn í Reykjavík um klukkan hálf eitt í dag. Tveir voru inni í fólksbíl sem virðist hafa verið ekið upp á kant, á gönguljós og oltið með þeim afleiðingum að bíllinn er mikið skemmdur. Innlent 4. október 2022 12:40
Fjöldi fólks hefur sótt sér áfallahjálp á Ólafsfirði Fjöldi fólks hefur nýtt sér áfallahjálp Kirkjunnar og Rauða krossins á Ólafsfirði vegna manndráps sem var framið þar í fyrrinótt. Rauði krossinn mun áfram hafa viðveru í bænum og veita bæjarbúum stuðning vegna hroðaverksins. Innlent 4. október 2022 11:50
Ökumönnum kennt á ljósabúnað bifreiða sinna Lögreglumenn á lögreglustöð fjögur sem sinnir Árbæ, Grafarvogi og Mosfellsbæ sinntu eftirliti í umdæmi sínu í gærkvöldi. Markmið eftirlitsins var að kenna ökumönnum á ljósabúnað bifreiða sinna. Fréttir 4. október 2022 06:18
Ætlað skotvopn reyndist leikfangabyssa Í kvöld var tilkynnt um ætlað skotvopn í bifreið í Hafnarfirði. Við nánari skoðun lögreglu kom í ljós að um leikfangabyssu var að ræða. Innlent 3. október 2022 22:16
Þrennt í gæsluvarðhald vegna manndrápsins á Ólafsfirði Héraðsdómur Norðurlands eystra úrskurðaði tvær konur og einn karlmann í vikulangt gæsluvarðhald vegna mannsláts á Ólafsfirði í kvöld. Karlmaður á fimmtugsaldri var stunginn til bana þar í nótt. Innlent 3. október 2022 22:15