

Keppni hinna bestu í Evrópu.
Bayern Munchen komst í hann krappan þegar liðið heimsótti RB Salzburg í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Liverpool er með pálmann í höndunum fyrir síðari leikinn gegn Ítalíumeisturum Inter Milan eftir góða ferð til Mílanó í kvöld.
Lionel Messi bætti enn einu metinu á ferilskrána í leik Paris Saint-Germain og Real Madrid í Meistaradeild Evrópu í gær. Hann er þó eflaust ekki ýkja stoltur af því.
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, var aðlilega ánægður með úrslitin eftir að liðið vann 5-0 sigur gegn Sporting Lissabon í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Hann segir þó að liðið geti gert betur.
Kylian Mbappé reyndist hetja Paris Saint-Germain er liðið tók á móti Real Madrid í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Lokatölur urðu 1-0, en Mbappé skoraði eina mark leiksins í uppbótartíma.
Englandsmeistarar Manchester City unnu 5-0 stórsigur er liðið heimsótti Sporting frá Lissabon í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Fæstir búast við því að Portúgalsmeistarar Sporting eigi mikla möguleika gegn Englandsmeisturum Manchester City í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. En Sporting hefur sýnt að liðinu eru allir vegir færir undir stjórn eins efnilegasta þjálfara Evrópu.
Þeir leikmenn enska knattspyrnufélagsins Chelsea sem ekki hafa verið bólusettir gegn Covid-19 mega að óbreyttu ekki ferðast með liðinu til að spila við Lille í Frakklandi í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í næsta mánuði.
Brasilíska goðsögnin Ronaldo hefur trú á því að hinn norski Erling Braut Haaland verði besti framherji heims en segir að hann sé ekki þar ennþá.
UEFA, Knattspyrnusamband Evrópu, hafnar þeim fréttum frá Þýskalandi að sambandið sé komið í stríð við pítsuframleiðanda.
Julian Nagelsmann er enn bara 34 ára gamall en hefur fyrir löngu skapað sér nafn sem einn besti knattspyrnustjóri heims. Það þarf ekki að koma neinum á óvart að hann hugsar um fótbolta allan sólarhringinn og líka í svefni.
Gareth Bale var einu sinni dýrasti og einn allra besti knattspyrnumaður heims. Hann er enn bara 32 ára gamall en síðustu ár hafa ekki verið honum hagstæð inn á fótboltavellinum.
Hertar sóttvarnarreglur franskra stjórnvalda gætu haft áhrif á leiki frönsku liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Reyndar ekki á frönsku liðin heldur andstæðingar þeirra.
Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar er frábær leikmaður en kannski orðinn þekktari fyrir leikaraskap heldur en snilli sína inn á vellinum.
Óhætt er að segja að tvennum sögum fari af Barcelona þessa dagana. Spænska félagið er stórskuldugt og í miklum vandræðum innan sem utan vallar en engu að síður er félagið með í baráttunni um einn feitasta bitann á félagsskiptamarkaðnum í sumar.
Lionel Messi er sloppinn úr einangrun í Argentínu og hefur loksins skilað sér aftur til Paris Saint-Germain úr jólafríðinu.
Lionel Messi er með kórónuveiruna en hann náði sér í hana í jólafríi sínu í Argentínu. Það er óhætt að segja að Argentínumenn hafi leitað uppi sökudólg eftir að fréttir bárust af smiti gulldrengsins.
Dregið var aftur í sextán liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í dag. Liverpool dróst gegn Inter, Manchester United gegn Atlético Madrid og þá eigast Real Madrid og Paris Saint-Germain við.
Dregið verður aftur í sextán liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Búið er að ógilda dráttinn sem fór fram í morgun.
Mistök virtust eiga sér stað í beinni útsendingu frá því þegar dregið var í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í dag. UEFA hefur ekki tjáð sig um málið en mögulegt er að dregið verði að nýju.
Cristiano Ronaldo og Lionel Messi, tveir af bestu knattspyrnumönnum sögunnar, mætast í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta með liðum Manchester United og PSG. Dregið var í beinni útsendingu á Vísi dag.
Villareal varð í kvöld seinasta liðið til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu með 2-3 útisigri gegn Atalanta.
Feðgarnir Robbie og Charlie Savage tóku báðir þátt í leik Manchester United og Young Boys í Meistaradeild Evrópu á Old Trafford í gær, með ólíkum hætti þó.
„Ég vissi alveg að liðið sem ég stillti upp í dag hefði ekki spilað saman áður sem lið,“ sagði Ralf Rangnick eftir 1-1 jafntefli Manchester United og Young Boys í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
Það var allt galopið fyrir lokaumferð G-riðils í Meistaradeild Evrópu. Öll fjögur liðin áttu möguleika á að komast áfram. Það fór hins vegar þannig að Lille og Salzburg fóru upp úr riðlinum eftir leiki kvöldsins.
Manchester United gerði 1-1 jafntefli við Young Boys frá Sviss í lokaleik riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Ralf Rangnick, þjálfari heimamanna, leyfði bókstaflega öllum að spila.
Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu er lokið. Eftir kvöldið er ljóst að Barcelona er á leið í Evrópudeildina eftir áramót en liðið átti aldrei möguleika er það sótti Bayern München heim. Þá vann Benfica öruggan sigur á Dynamo Kíev.
Leikur Atalanta og Villareal í F-riðli Meistaradeildar Evrópu mun fara fram á morgun þar sem veðuraðstæður í Bergamo á Ítalíu leyfa einfaldlega ekki knattspyrnuiðkun sem stendur. Sömu sögu er ekki að segja úr Kópavogi þar sem hefur einnig snjóað gríðarlega í kvöld.
Timo Werner skoraði tvívegis er Chelsea gerði 3-3 jafntefli á útivelli við Zenit St. Pétursborg í H-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Það þýddi að Juventus vann riðilinn þökk sé 1-0 sigri á Malmö.
Liverpool varð í gærkvöldi fyrsta enska knattspyrnuliðið til að fara í gegnum riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu með fullt hús stiga eftir að liðið vann 2-1 útisigur gegn AC Milan.