Stækka hlustendahópinn í gegnum sjónvarpsþætti Lag með hljómsveitinni Steed Lord hljómaði undir dansatriði í sjónvarpsþættinum So Yo Think You Can Dance sem sýndur var á Fox-sjónvarpsstöðinni á miðvikudagskvöld í síðustu viku. Þetta er í annað sinn sem lag með sveitinni er notað í þættinum. Tónlist 3. júlí 2012 14:00
Fjórða myndband Sigur Rósar kom í dag Fjórða myndbandið í tilraun Sigur Rósar, The Valtari mystery film experiment, kom út í dag. Myndbandið gera leikstjórarnir Arni & Kinski sem eru kunnir af fyrra samstarfi sínu við Sigur Rós, en þeir leikstýrðu m.a. myndböndum við lögin Glósóli og Viðrar vel til loftárása. Tónlist 2. júlí 2012 16:39
Gítar Skálmaldar boðinn upp "Við þungarokkararnir getum líka látið gott af okkur leiða,“ segir Þráinn Árni Baldvinsson úr rokksveitinni Skálmöld. Tónlist 29. júní 2012 15:00
Skytturnar með nýtt rapp Hipphopp verður í hávegum haft á Þýska barnum um helgina á hátíðinni Yolo. Skytturnar eru meðal rapphljómsveita en tónleikar þeirra eru hluti af endurkomu sveitarinnar. Tónlist 29. júní 2012 08:00
Retro Stefson endurgerir slagara Ný danskar "Ég hef aldrei verið neinn aðdáandi Ný danskar en hef hlustað svo mikið á lög sveitarinnar síðasta hálfa árið að ég er eldheitur aðdáandi núna,“ segir Unnsteinn Manúel Stefánsson, meðlimur Retro Stefson sem endurgerði slagara Ný danskrar, Fram á nótt. Tónlist 28. júní 2012 13:00
Rokkveisla í Kaplakrika Stórtónleikarnir Rokkjötnar 2012 verða haldnir í Kaplakrika í september. Bibbi í Skálmöld segir fólk eiga von á fólki á öllum aldri og engu veseni. Tónlist 28. júní 2012 12:00
Öll flóra raftónlistar undir jökli „Hinn breski Mixmaster Morris spilar en hann er stórt nafn í þessum geira,“ segir Pan Thorarensen, einn skipuleggjenda raftónlistarhátíðarinnar Extreme Chill Festival – Undir Jökli, sem hefst á morgun og stendur fram á sunnudag á Hellissandi við Snæfellsjökul. Hátíðin er haldin í þriðja sinn í ár í félagsheimilinu Röst og utandyra með lifandi flutningi og plötusnúðum. „Við héldum fyrstu hátíðina árið 2010 en fengum hugmyndina árið 2008 þegar við feðgarnir í hljómsveitinni Stereo Hypnosis vorum við upptökur á plötunni Hypnogogia hér á Hellissandi,“ segir Pan sem spilar bæði með hljómsveit sinni og sem Beatmakin Troopa um helgina. Tónlist 28. júní 2012 08:00
Klaufalegir hestatextar Íslenski hesturinn er aðalviðfangsefni textanna á þriðju plötu kántrísveitarinnar Klaufar, Óbyggðir, sem er nýkomin út. Einnig er skírskotað til mannlegs eðlis, ástarinnar og íslenskrar náttúru, hvort sem hún er líffræðilegs eða sjónræns eðlis. Tónlist 23. júní 2012 11:00
Ólýsanleg stemning á Hellfest "Stemningin var alveg ólýsanleg. Við vart trúðum okkar augum né eyrum, þetta gekk svo vel,“ segir Jón Björn Ríkharðsson, eða Jónbi, trommari í Brain Police. Tónlist 23. júní 2012 09:00
Safnaði fyrir sólóplötu í Noregi "Þetta er búið að liggja í loftinu lengi,“ segir Ingo Hansen sem hefur gefið út sína fyrstu plötu. Walking Up the Wall. Tónlist 23. júní 2012 08:00
Gojira syngur um frelsið Franska þungarokkssveitin Gojira gefur út sína fimmtu hljóðversplötu eftir helgi. "Þroskaðri en fyrri verk,“ segir forsprakkinn Joe Duplantier. Tónlist 21. júní 2012 22:00
Lesendur Vísis velja lögin á safnplötu Botnleðju Í tilefni af endurkomu Botnleðju standa X-ið 977 og Vísir fyrir kosningu um bestu lög Botnleðju. Lesendur eru hvattir til að fara á slóðina visir.is/botnledja og velja þar þau lög sem þeim finnst standa upp úr. Þau lög sem fá flest atkvæði munu síðan prýða safnplötu Botnleðju sem kemur út í haust. Þegar rennt er yfir listann sést hversu glæsilegt lagasafn Botnleðju er og ætti enginn að lenda í vandræðum með að finna sér lög til að kjósa. Tónlist 20. júní 2012 16:30
Leikur ný lög á Flóru „Ég spila á flest hljóðfæri á nýju plötunni,“ segir Ólöf Arnalds sem leikur lög af væntanlegri breiðskífu sinni, Sudden Elavation, í bland við tónsmíðar af fyrri plötum og eftir aðra tónlistarmenn á tvennum tónleikum á Café Flóru í Grasagarðinum á morgun og hinn. Tónlist 20. júní 2012 11:00
Einfalt en margslungið Þriðja plata Hildar Guðnadóttur fyrir Touch-útgáfuna er athyglisvert sambland af raftónlist og nýklassík. Á heildina litið er þetta mjög flott verk sem virkar best spilað á góðum styrk. Í senn einfalt og margslungið. Gagnrýni 20. júní 2012 06:00
Harma sviðsslys í Toronto Einn maður lést þegar svið sem hljómsveitin Radiohead átti að leika á í Toronto hrundi til grunna og þrír aðrir slösuðust. Enn er ekki ljóst hvað olli slysinu. Scott Johnson, hljóðmaður í föruneyti Radiohead, lést er sviðið hrundi og var úrskurðaður látinn á staðnum. Meðlimir sveitarinnar sendu frá sér tilkynningu þar sem þeir segjast miður sín vegna slyssins. „Scott var ljúfur maður, ávallt jákvæður og skemmtilegur. Hann var einstaklega hæfileikaríkur og vel liðinn og við munum sakna hans mjög mikið. Hugur okkar er hjá fjölskyldu Scotts,“ stóð í tilkynningunni. Tónlist 19. júní 2012 12:00
Söngvari Bombay Bicycle Club á Hressó "Við ætlum að fá innblástur frá náttúrunni,“ segir Jack Steadman, söngvari þekktu indírokk-hljómsveitarinnar Bombay Bicycle Club sem heldur tónleika í Hressingarskálanum ásamt tónlistarkonunni Þorbjörgu Ósk Eggertsdóttur annað kvöld. Tónleikarnir verða órafmagnaðir og munu þau flétta tónsmíðar sínar saman. "Svo verður eitthvað óvænt sem kemur út úr æfingaferð til Vestmannaeyja.“ Tónlist 19. júní 2012 12:00
Húsfyllir hjá Helga Björns Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var gríðarlega góð stemning á tónleikum Helga Björns í Hörpu á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Sætin voru þéttsetin og fjölmargir þekktir tónlistarmenn sáu til þess að allir skemmtu sér konunglega. Myndirnar segja allt sem segja þarf. Tónlist 19. júní 2012 11:30
Stór nöfn á styrktartónleikum "Við viljum eiga saman ánægjulega kvöldstund og styrkja hann Davíð okkar í leiðinni,“ segir stórsöngvarinn Björgvin Halldórsson, einn aðstandenda styrktartónleika fyrir Davíð Örn Arnarsson sem berst við krabbamein í hálsi. Tónlist 19. júní 2012 10:30
Shia LaBeouf í þriðja myndbandi Sigur Rósar Sigur Rós sendi frá sér þriðja myndbandið í verkefninu "The Valtari mystery film experiment" í dag. Alma Har'el gerir myndbandið, en hún er leikstjóri frá Ísrael og hefur unnið með listamönnum á borð við Beirut og Jack Penate. Tónlist 18. júní 2012 15:49
Söngvari Bombay Bicycle club á Hressó Söngvarinn í hljómsveitinni Bombay Bicycle club mun spila á Hressó á miðvikudaginn kemur ásamt Þorbjörgu Ósk Eggertsdóttur. Tónleikarnir verða órafmagnaðir og saman munu þau taka Bombay Bicycle club lög í bland við lög eftir Þorbjörgu. Tónlist 18. júní 2012 10:45
Björk á plötu Bon Iver Hljómsveitin Bon Iver gefur út nýja EP-plötu í næstu viku. Hún hefur að geyma sjö lög sem voru tekin upp á tónleikum, þar á meðal útgáfu sveitarinnar á Bjarkarlaginu Who Is It? Meðal annarra laga á plötunni er Holocene sem kom nýlega út á smáskífu. Það er einnig að finna á síðustu plötu Bon Iver sem kom út í fyrra. Tónlist 16. júní 2012 19:00
Gefur loksins út eigin plötu „Ég er búinn að gefa út mörg hundruð plötur með öðrum en ég hef ekki áður gefið út plötu með sjálfum mér,“ segir Steinar Berg Ísleifsson. Tónlist 16. júní 2012 18:00
Söngleikjaplata frá söngvara ársins Þór Breiðfjörð er með einsöngsplötu í undirbúningi þar sem lög úr söngleikjum verða áberandi. „Mig langar að taka fleiri stór lög sem hafa jafnvel ekki verið sungin inn á plötu, til dæmis Óperudrauginn. Svo verða frumsamin lög eftir góða höfunda sem ég hef verið að skoða. Þetta verður góð blanda,“ segir Þór, sem hyggur einnig á upptökur á hefðbundnari dægurlagaplötu á næsta ári. Tónlist 16. júní 2012 11:00
Vantar íslenska umboðsmenn „Okkur vantar fleiri aðila með þekkingu á við erlenda umboðsmenn. Við erum soddan sveitamenn hérna heima,“ segir Tómas Young hjá Útón, útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar. Tónlist 16. júní 2012 09:00
Vill íslenska hljómsveit á tónleikaferð erlendis Bandaríski tónlistarmaðurinn John Grant vill fá Íslendingana sem spila með honum á nýrri sólóplötu hans til að fara með sér í tónleikaferð erlendis. Tónlist 16. júní 2012 07:00
Goðsagnir snúa aftur Heilmyndir af látnu goðsögnunum Jim Morrison og Jimi Hendrix eru í undirbúningi og því styttist í að haldnir verði tónleikar með þeim. Mikið hefur verið rætt um heilmyndir síðan rapparinn Tupac Shakur steig óvænt á svið á Coachella-hátíðinni í apríl. Það voru félagarnir Dr. Dre og Snoop Dogg sem stóðu á bak við uppátækið. Tónlist 14. júní 2012 22:00
Björk lokar appelsínugula sviðinu Björk okkar Guðmundsdóttir verður síðasti listamaðurinn sem kemur fram á Orange-sviðinu á Hróarskelduhátíðinni í ár og lokar þar með sviðinu. Tónlist 14. júní 2012 18:00
Fyrsta platan frá In Siren In Siren hefur gefið út sína fyrstu breiðskífu, In Between Dreams. Hljómsveitin er metnaðarfullt samstarf fimm tónlistarmanna í Reykjavík. Þeir koma úr ýmsum áttum og eru meðal annars kenndir við hljómsveitirnar Árstíðir, Ask the Slave, Momentum og Plastic Gods. Hljómi sveitarinnar má líkja við Trúbrot eða bresk bönd eins og Yes, King Crimson og Queen. Tónlist 14. júní 2012 15:00